| |
| 1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Lagt fram. | Fjölskylduráð vísar tillögum og bókunum vegna fjárhagsáætlunar 2027 og 2028-2030 ásamt gjaldskrá til fyrri umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarráði.
Fjölskylduráð leggur fram eftirfarandi bókun:
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar kallar á ábyrgar og markvissar aðgerðir til að tryggja sjálfbæran rekstur til framtíðar og ljóst er að miklar áskoranir eru í rekstri bæjarins. Mikilvægt er að þær hagræðingar- og aðhaldsaðgerðir sem ráðist verður í vegna fjárhagsáætlunar 2027 verði útfærðar af ábyrgð og með það að leiðarljósi að standa vörð um gæði grunnþjónustu fjölskyldu- og barnamálasviðs.
Mikilvægt er að leita leiða til að nýta fjármagn með sem skilvirkustum hætti, endurskoða verklag og skipulag þar sem tækifæri eru til staðar og tryggja að fjármunir nýtist sem best í þágu þeirra sem reiða sig á þjónustu sviðsins.
Hagsmunir íbúa, velferð þeirra og gæði þjónustunnar skulu ávallt vera í forgrunni við ákvarðanatöku vegna fjárhagsáætlunar næsta árs. | | |
|
| 2. 2603459 - Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu | | Lagt fram. | | Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að taka saman minnisblað um málið. Í því komi fram hvaða vinna hefur átt sér stað í því og lagðar fram hugmyndir um það hver næstu skref í málinu geti verið. | | Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu - greinargerð 27.10.2026.pdf | | Minnisblað fyrir fjölskylduráð 29.09.26.pdf | | |
|
| 3. 2609524 - Stofnun tímabundins starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð | | Lagt fram til afgreiðslu. | Í ljósi þess að fjölskylduráð hefur verið með þetta mál til skoðunar að undanförnu og mun halda henni áfram telur meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar ekki þörf á því að stofnaður verði tímabundinn starfshópur til að yfirfara fjárhagsaðstoð bæjarins.
Framsókn leggst gegn því að stofnaður verði sérstakur tímabundinn starfshópur um yfirferð á framkvæmd fjárhagsaðstoðar sveitarfélagsins. Innan félagsþjónustunnar starfa fagmenntaðir og reynslumiklir starfsmenn sem hafa lögbundið hlutverk og sérþekkingu á mati, afgreiðslu og framkvæmd fjárhagsaðstoðar. Telja verður eðlilegra og skilvirkara að nýta þá þekkingu og faglegu hæfni sem þegar er til staðar innan stjórnsýslunnar fremur en að stofna enn einn starfshópinn.
Jafnframt er mikilvægt að gæta að ráðdeild í rekstri sveitarfélagsins og forðast óþarfa stjórnsýslustig sem geta tafið ákvörðunartöku og valdið tvíverknaði. Ef þörf er talin á endurskoðun verklags eða reglna um fjárhagsaðstoð er eðlilegt að sú vinna fari fram innan félagsþjónustunnar í samstarfi við viðeigandi ráð og stjórnendur, án þess að skipa sérstakan starfshóp. Framsókn telur því að fyrirliggjandi mannauður og fagþekking innan þjónustunnar sé fyllilega nægjanleg til að annast slíka yfirferð með hagkvæmum og skilvirkum hætti | | |
|
| 4. 2601658 - Reglur um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað | | Lagt fram. | | Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að hefja undirbúning endurskoðunar á reglum um fjárhagsaðstoð. | | Reglur um fjárhagsaðstoð - greinargerð 27.10.2026.pdf | | |
|
| 5. 2604117 - Málefni fólks með einhverfu | | Framsókn óskar eftir minnisblaði um stöðu málefna fólks með einhverfu sem óskað var eftir á fundi fjölskylduráðs þann 15. september sl. | | Lagt fram. | | |
|
| 6. 2610639 - Húsnæðismál mæðrarstyrksnefndar, fyrirspurn. | Fulltrúi Framsóknarflokks leggur fram eftirfarandi fyrirspurn: Fulltrúi Framsóknar óskar eftir upplýsingum um stöðu vinnu við að finna Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hentugt framtíðarhúsnæði fyrir starfsemi sína. Fyrir jólin 2025 hafði Mæðrastyrksnefnd aðstöðu í húsnæði í eigu Hafnarfjarðarbæjar við Strandgötu 41. Á fyrri hluta árs 2026 var hafin vinna við að kanna möguleika á framtíðarhúsnæði fyrir nefndina með það að markmiði að tryggja starfseminni viðeigandi og varanlega aðstöðu. Óskað er eftir upplýsingum um hvar sú vinna stendur í dag, hvaða húsnæðiskostir hafa verið skoðaðir og hvort viðræður hafi átt sér stað við forsvarsfólk Mæðrastyrksnefndar um framtíðaraðstöðu hennar. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hver næstu skref eru í málinu og hvenær megi vænta þess að niðurstaða liggi fyrir. Greinargerð Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sinnir afar mikilvægu samfélagslegu hlutverki og hefur um árabil verið ómetanleg stoð fyrir einstaklinga og fjölskyldur í bænum sem eiga undir högg að sækja. Þar fer fram einstakt og óeigingjarnt starf þar sem sjálfboðaliðar leggja á sig mikla vinnu til að styðja við samborgara sína af hlýju, virðingu og umhyggju. Starfsemin felst meðal annars í aðstoð við efnaminni fjölskyldur fyrir jól, stuðningi vegna ferminga og annarri aðstoð við börn og fjölskyldur sem þurfa á henni að halda. Fyrir jólin 2025 naut hópur um 300 hafnfirskra einstaklinga og fjölskyldna stuðnings nefndarinnar og um 300 börn tilheyrðu þeim fjölskyldum. Þessar tölur undirstrika vel hversu mikil þörf er fyrir starfsemina. Það er mikilvægt að Hafnarfjarðarbær standi áfram þétt við bakið á Mæðrastyrksnefnd og stuðli að því að hún hafi örugga og hentuga aðstöðu til framtíðar. Með því er ekki aðeins verið að styðja við mikilvægt sjálfboðaliðastarf heldur einnig að tryggja að hjálpin geti áfram borist til þeirra sem á henni þurfa að halda. Samfélag okkar er sterkara þegar við stöndum saman og hlúum að þeim sem þurfa stuðning. Starf Mæðrastyrksnefndar er fallegt dæmi um slíka samstöðu og mikilvægt að skapa því góð skilyrði til framtíðar. | | Lagt fram. | | |
|
| |
| 7. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði | | Lögð fram fundargerð SSH frá 7. október sl. | | Frestað. | | |
|
| 8. 0701243 - Málskot | Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 34-37/2026. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. | | |
|