| |
| 1. 2406200 - Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum | | Svör við fyrirspurn Samfylkingar lögð fram. | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlagðar upplýsingar við fyrirspurn okkar um málið. Gott er að fá staðfestingu á því að miðgildi aldurs barna sem innritast í leikskóla haustið 2026 er 17,68 mánuðir og meðaltal 17,99 mánuðir. Þær tölur gefa skýrari mynd af aldri barna sem innritast í leikskóla haustið 2026. Jafnframt er gagnlegt að vita að 30 börn á biðlistanum eru fædd í júlí 2025 og 31 barn í ágúst 2025, samtals 61 barn.
Meirihluti fræðsluráðs áréttar að næsta haust, þ.e. 2026 verður innritunaraldur leikskólabarna 14 mánuðir. Meirihlutinn þakkar minnisblað sem áréttar meðalaldur barna í innritun þegar horft er á árið í heild. Sú vinna sem lögð hefur verið í á líðandi kjörtímabili hefur leitt það af sér að á hausti er hægt að innrita þetta ung börn en slíkt hefur ekki náðst í öllum sveitarfélögum. | | Minnisblað_Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum_120526.pdf | | |
|
| 2. 2502543 - Leikskólalóðir 2025 | | Lagt fram. | Fræðsluráð samþykkir tillögu starfshóps sem lögð er til í minnisblaði um að málinu verði vísað til áframhaldandi vinnslu hjá sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Fræðsluráð tekur jafnframt undir að sú vinna og þau gögn sem þegar hefur verið aflað verði nýtt áfram í komandi vinnu. Þar er annars vegar um að ræða mat og ábendingar hagaðila innan skólanna á árinu 2025, þ.m.t. frá nemendum, foreldrum, stjórnendum og starfsfólki, og hins vegar mat stjórnenda vorið 2026 ásamt niðurstöðum starfshópsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að það sé gerð langtímaáætlun. Margar lóðir illa farnar og þarfnast mikils viðhalds því mikilvægt að fara í þetta að krafti og vinna hratt og vel.
Fulltrúi Viðreisnar lýsir yfir þungum áhyggjum af vinnulagi og niðurstöðum starfshóps um leik- og grunnskólalóðir. Í minnisblaðinu kemur skýrt fram að niðurstöður hópsins séu að stórum hluta í samræmi við það mat sem skólastjórnendur höfðu þegar lagt fram. Það sýnir glögglega dæmi um þunglamalega stjórnsýslu og óþarfa nefndasetu á kostnað bæjarbúa þegar skipaður er sérstakur pólitískur starfshópur til þess eins að safna gögnum sem þegar voru til staðar innan kerfisins og verkefninu svo vísað óloknu aftur til sviðsstjóra. Á sama tíma og skólalóðir bæjarins eru margar hverjar komnar til ára sinna, telur Viðreisn réttara að verja fjármunum og tíma í raunverulegar framkvæmdir og úrbætur fremur en í starfshópa sem fresta ákvörðunum fram yfir kosningar.
| | Minnisblað_leik-og grunnskólalóðir_120526.pdf | | |
|
| 3. 2405231 - Fagháskólanám í leikskólafræði milli HÍ, HA og Hafnarfjarðar | | Lagt fram til afgreiðslu. | Fræðsluráð samþykkir að starfsmenn leikskóla hafi aðgang að fagháskólanámi í leikskólafræðum sem er ein af námsleiðum til að öðlast leyfisbréf sem leikskólakennari. Með ákvörðuninni er markvisst unnið að því að fjölga leikskólakennurum og styrkja með því enn faglegra starf í leikskólum Hafnarfjarðar.
| | Minnisblað_Fagháskólanám 12052026.pdf | | |
|
| 4. 2604153 - Dagskrá sumarstarfs tómstundamiðstöðva | | Kynning | Fræðsluráð þakkar fyrir kynninguna. Ráðið fagnar því að sjá öflugt starf og fjölbreytt framboð námskeiða sem stuðlar að auknu aðgengi ungs fólks að fjölbreyttu félags- og tómstundastarfi. Fræðsluráð lýsir ánægju með að félagsmiðstöðvar og ungmennahús muni bjóða upp á fjölbreyttari starfsemi og aukna opnun, sem felur í sér stóraukna þjónustu við ungt fólk á sviði félagsstarfs
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna fjölbreyttu og auknu framboði í sumarstarfi tómstundamiðstöðvanna. Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna sérstaklega sumarfrístund fyrir komandi 1. bekk í ágúst, en hún þjónar tvíþættu hlutverki bæði sem þjónusta við foreldra og sem aðlögunartækifæri fyrir börnin sjálf. Fulltrúar Samfylkingarinnar gera þó athugasemd við að ekki sé í boði niðurgreitt sumarstarf fyrir 7-9 ára gömul börn á síðustu vikum fyrir skólasetningu. Óska fulltrúar eftir að leitað verði leiða til að auka framboð niðrgreiddra námskeiða eða annarra leiða til að draga úr kostnað fyrir foreldra þessa aldurshóps.
| | Sumarstarf tómstundamiðstöðvanna 2026.pdf | | |
|
| 5. 2605174 - Tengiliðir farsældar | | Lagt fram til kynningar | | Fræðsluráð fagnar þeirri öflugu innleiðingu farsældar barna í Hafnarfirði og því frumkvöðlastarfi sem sveitarfélagið hefur unnið á því sviði. Horft er til Hafnarfjarðar frá öðrum sveitarfélögum vegna markvissrar vinnu þar sem starfslýsingar tengiliða farsældar eru skýrar og vel afmarkaðar. Mikilvægt er að starfi tengiliða og farsældarteymi starfi áfram og að það verði kynnt vel fyrir foreldrum og ekki síður fyrir börnum. | | |
|
| 6. 2604405 - Erindi - Uppeldi til ábyrgðar - Ósk um samning um þjónustu og ráðgjöf | | Lagt fram til afgreiðslu. | Meirihluti fræðsluráðs felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að gera samning við Félag um uppbyggingu sjálfsaga - uppeldi til ábyrgðar um fræðslu og faglega ráðgjöf. Ráðið telur samstarfið lykilatriði í að efla farsæld barna, styrkja félagsfærni, sjálfsaga og ábyrgð nemenda og tryggja öruggt, styðjandi og uppbyggilegt námsumhverfi, með samræmdum aðferðum í þeim skólum sem starfa samkvæmt stefnunni. Uppeldi til ábyrgðar er góð viðbót við þá flóru sem fyrir er í hafnfirskum skólum. Meirihluti fræðsluráðs vekur jafnframt athygli á því að fjármagn til samningsins er innan fjárheimilda núverandi fjárhagsárs í gegnum þróunarsjóð.
Fulltrúi Viðreisnar leggur til að ákvörðun um erindi Félags um uppbyggingu sjálfsaga verði frestað og vísað til umsagnar nýs fræðsluráðs að loknum sveitarstjórnarkosningum. Uppeldi til ábyrgðar er mætt verkefni sem á sér dýrmæta sögu innan skólakerfisins í Hafnarfirði. Hins vegar er hér um að ræða nýjan þjónustu- og ráðgjafasamning til tveggja ára sem lagður er fram á síðasta fundi ráðsins fyrir kjördag. Viðreisn telur eðlilegra og í takt við vandaða stjórnsýsluhætti að nýtt ráð fái tækifæri til að fara yfir málið. Á sama tíma leggur Viðreisn áherslu á mikilvægi þess að hagsmunaárekstrar séu fyrirbyggðir í hvívetna í stjórnsýslu bæjarins og að fyllsta hæfis sé gætt við undirbúning og afgreiðslu mála þar sem tengsl kunna að vera á milli embættisfólks og hagsmunasamtaka út í bæ. Það er lykilatriði að rekstur og samningar bæjarins séu ávallt byggðir á óháðu, faglegu mati og algjöru gagnsæi.
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja tillögu áheyrnarfulltrúa Viðreisnar þar sem ekki er eðlilegt að afgreiða mál af þessum toga á síðasta fundi kjörtímabilsins. Við leggjum áherslu á að málið verði skoðað vandlega áður en lengra er haldið. Hafnarfjörður hefur á undanförnum árum byggt upp verulega sérþekkingu í SMT-aðferðafræði, sem er gagnreynd nálgun við hegðunarvanda barna. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á mikilvægi þess að vernda og viðhalda þeirri fjárfestingu. Vönduð stjórnsýsla og upplýst ákvörðunartaka eru lykilatriði þar sem tryggt er að engir hagsmunaárekstrar séu til staðar. Við getum ekki stutt málið eins og það er lagt upp í fræðsluráði og gerum athugasemdir við tímasetningu málsins og sitjum því hjá við afgreiðslu samningsins.
| | |
|
| 7. 2602248 - Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna | | Lagt fram til kynningar | | Fræðsluráð þakkar kynninguna. | | Púlsinn kynning fyrir faghópa_maí26.pdf | | |
|
| 8. 2604455 - Fyrirspurn Samfylkingar, verkefni Brúarsmíða og framtíðar áform | | Svör við fyrirspurn Samfylkingar lögð fram. | Fulltrúar Samfylkingar þakka framlagðar upplýsingar sem sýna fram á mikilvægi þeirrar þjónustu sem brúarsmiðir veita. Fulltrúar Samfylkingar leggja fram eftirfarandi fyrirspurn: Hefur fjármögnun fyrir verkefni brúarsmíða verið tryggt þannig að öruggt sé að verkefnið haldi áfram eftir þetta skólaár?
| | Minnisblað_verkefni Brúarsmiða og framtíðaráform_120526.pdf | | |
|
| 9. 2604126 - Einhverf börn innan skólakerfis Hafnarfjarðar | | Svar við fyrirspurn foreldraráðs | | Lagt fram. | | Minnisblað_2604126.pdf | | |
|
| 10. 2603379 - Skólastjóri Víðistaðaskóla | | Lagt fram til kynningar. | | Fræðsluráð óskar Arnóri Heiðarsson velfarnaðar í starfi og bjóðum hann velkominn til starfa sem skólastjóra Víðistaðaskóla. | | |
|
| 11. 2502544 - Grunnskólalóðir 2025 | | Lagt fram. | Fræðsluráð samþykkir tillögu starfshóps sem lögð er til í minnisblaði um að málinu verði vísað til áframhaldandi vinnslu hjá sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Fræðsluráð tekur jafnframt undir að sú vinna og þau gögn sem þegar hefur verið aflað verði nýtt áfram í komandi vinnu. Þar er annars vegar um að ræða mat og ábendingar hagaðila innan skólanna á árinu 2025, þ.m.t. frá nemendum, foreldrum, stjórnendum og starfsfólki, og hins vegar mat stjórnenda vorið 2026 ásamt niðurstöðum starfshópsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að það sé gerð langtímaáætlun. Margar lóðir illa farnar og þarfnast mikils viðhalds því mikilvægt að fara í þetta að krafti og vinna hratt og vel.
Fulltrúi Viðreisnar lýsir yfir þungum áhyggjum af vinnulagi og niðurstöðum starfshóps um leik- og grunnskólalóðir. Í minnisblaðinu kemur skýrt fram að niðurstöður hópsins séu að stórum hluta í samræmi við það mat sem skólastjórnendur höfðu þegar lagt fram. Það sýnir glögglega dæmi um þunglamalega stjórnsýslu og óþarfa nefndasetu á kostnað bæjarbúa þegar skipaður er sérstakur pólitískur starfshópur til þess eins að safna gögnum sem þegar voru til staðar innan kerfisins og verkefninu svo vísað óloknu aftur til sviðsstjóra. Á sama tíma og skólalóðir bæjarins eru margar hverjar komnar til ára sinna, telur Viðreisn réttara að verja fjármunum og tíma í raunverulegar framkvæmdir og úrbætur fremur en í starfshópa sem fresta ákvörðunum fram yfir kosningar.
| | Minnisblað_leik-og grunnskólalóðir_120526.pdf | | |
|
| 12. 2605151 - Rannsókn á starfsálagi í grunnskólum | | Fyrirspurn frá fulltrúa grunnskólakennara. | Fræðsluráð vekur athygli á því að fyrirhugaður er kynningarfundur með skólastjórum á höfuðborgarsvæðinu þann 19 mai þar sem farið verður yfir niðurstöður í skýrslu skólamálanefndar SSH. Fræðsluráð virðir trúnað og tjáir sig því ekki um efni skýrslunnar enda er hún trúnaðar þar til umræddur fundur hefur verið haldinn.
Fulltrúi grunnskólakennara lýsir yfir vonbrigðum að fá ekki kynningu á skýrslunni líkt og fulltrúi fór fram á með fyrirspurnar erindi dagsett 2. maí s.l. Sú afsökun sem gefin er upp að skýrslan sé trúnaðarmál og kynning eigi eftir að fara fram fyrir skólastjórnendur bæjarinns 19. maí n.k. Öll bæjarfélög höfuðborgarsvæðisins fengu skýrsluna afhenta í apríl og telur að nægur tími hefur verið til að kynna þessa skýrslu fyrir stjórnendum grunnskólanna. Það er ekki fyrr en að fulltrúi grunnskólakennara fer fram á kynningu á niðurstöðum skýrslunnar sem stjórnendum er boðið til kynningar á henni.
| | |
|
| 13. 2605173 - Endurmenntunarsjóður grunnskóla, úthlutun | | Lagt fram til kynningar. | | Lagt fram. | | Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026.pdf | | |
|
| 14. 24011027 - Hjallastefna, Hjallabraut 55, fyrirspurn | | Erindi lagt fram. | | Fræðsluráð vísar erindi Hjallastefnu til umfjöllunar við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. | | 2026_04_Erindi til fræðsluráðs vegna húsnæðis Barnaskóla Hjallastefnunnar.pdf | | |
|
| 15. 2303170 - Þróun útivistar- tómstunda- og íþróttasvæðis Hamranesi | | Skýrsla lögð fram til afgreiðslu. | Meirihluti fræðsluráðs telur uppbyggingu íþrótta- og tómstundamiðstöðvar í Hamranesi vera einstakt framtíðartækifæri fyrir Hafnarfjörð. Niðurstöður vinnunnar sýna skýra þörf fyrir nútímalega og fjölbreytta aðstöðu sem styður við íþróttir, tómstundir, heilsueflingu og samfélagslega virkni allra aldurshópa. Miðstöðin mun verða öflugur samfélagskjarni þar sem áhersla er lögð á aðgengi, samnýtingu og hagkvæmni. Staðsetning svæðisins býður jafnframt upp á einstaka möguleika til að tengja saman byggð og náttúru í heilsueflandi nærumhverfi. Meirihluti fræðsluráðs leggur því ríka áherslu á að verkefninu verði haldið áfram í góðu samstarfi við íbúa og hagaðila með það að markmiði að skapa framtíðarinnviði sem efla lífsgæði og samfélagslega samheldni í Hafnarfirði.
Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir meginniðurstöður starfshópsins um að uppbygging íþrótta- og tómstundamiðstöðvar í Hamranesi sé bæði raunhæf og afar mikilvæg fyrir framtíðarþróun Hafnarfjarðar. Jafnframt vilja fulltrúar ítreka mikilvægi þess að leysa úr brýnum húsnæðisvanda nokkurra íþróttafélaga í bænum, þar á meðal Fimleikafélagsins Bjarkanna, Badmintonfélags Hafnarfjarðar ofl., sem skýrslan staðfestir að glími við plássleysi og biðlista . Í niðurstöðum starfshópsins kemur þó ekki fram að fyrirhuguð íþróttamiðstöð gegni jafnframt hlutverki íþróttahúss fyrir Hamranesskóla. Eina leiðin að miðstöðinni er í gegnum Hamraneshverfið, um 1,3 km vegalengd, sem jafngildir um 15 mínútna göngu fyrir börn. Fulltrúar Samfylkingarinnar í starfshópnum vakti ítrekað athygli á því í vinnu starfshópsins að nauðsynleg staðarvalsgreining fyrir skólaíþróttahús liggur ekki fyrir og að engir aðrir valkostir hafa verið skoðaðir sem gætu hugsanlega verið nær skólanum. Þá var ekki haft samráð við skólastjóra Hamranesskóla um íþróttahús skólans, þrátt fyrir að skýrslan leggi áherslu á samráð við hagaðila í öðrum þáttum verkefnisins. Uppbygging íþrótta- og tómstundamiðstöðvar er brýnt verkefni og mikilvæg þjónusta fyrir nýtt hverfi. Slík miðstöð skapar lifandi og fjölskylduvænt nærumhverfi og léttir daglegt líf íbúanna. Það verður verkefni nýrrar bæjarstjórnar að halda áfram þessari vinnu og leysa með farsælum hætti.
Fulltrúi Viðreisnar fagnar þeirri vinnu sem starfshópur um þróun útivistar-, tómstunda- og íþróttasvæðis í Hamranesi hefur lagt af mörkum og þeirri framtíðarsýn sem þar birtist. Hins vegar liggur fyrir að starfshópurinn vísar ákvörðun um rekstrarform og mögulegar fjármögnunarleiðir beint til nýs kjörtímabils. Þar sem um er að ræða gríðarlega umfangsmikið framkvæmdaverkefni sem mun hafa mikil fjárhagsleg áhrif á bæjarsjóð til framtíðar, telur Viðreisn það stríða gegn ábyrgri fjármálastjórnun að afgreiða málið efnislega á lokafundi ráðsins fyrir kjördag, án þess að fyrir liggi raunhæft kostnaðarmat eða skýr fjármögnunarleið. Viðreisn leggur til að ráðið taki á móti skýrslunni sem dýrmætu fylgigagni en eftirláti nýrri bæjarstjórn og fræðsluráð að taka næstu skref, forgangsraða uppbyggingunni og tryggja gagnsæi í fjármögnun verkefnisins.
| | Íþrótta- og tómstundamiðstöð skýrsla Hamranes.pdf | | |
|
|
| 17. 2501360 - Rekstrar og þjónustusamningar íþróttafélaga | | Til umræðu | | Til umræðu. | | |
|
| |
| 18. 2603021F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 421 | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | 18.1. 2501360 - Rekstrar og þjónustusamningar íþróttafélaga Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til breytingu á flokkum í matrixu, svo þeim verði fjölgað þannig að bil á milli flokka sé minna.
Bókun fulltrúa Samfylkingar: Ekki verður séð að miklar breytingar séu í drögum að nýjum þjónustusamningi Hafnarfjarðarbæjar við íþróttafélögin í bænum frá gildandi samningi sem er frá mars 2017. Það er helst að gerðar eru auknar kröfur um skipulag, gæðaviðmið, upplýsingaskyldu og bókhald. Þá er kveðið á um að ef ekki verði staðið við þessar kröfur geti bærinn seinkað greiðslum og jafnvel fellt þær niður. Þetta er skref í rétta átt en það vantar mikið upp á. Þessi drög að þjónustusamningi virðast eiga ágætlega við þegar gerður er samningur við félög sem eru með eina íþróttagrein á dagskrá sinni. Þar með getur viðkomandi félag haldið úti skrifstofu og haft framkvæmdastjóra á launum. Það þarf hins vegar aðra nálgun þegar um þjónustusamning við fjölgreinaíþróttafélög er að ræða. Þá þarf að tryggja að einstakar deildir fái greiðslu fyrir þá þjónustu sem bærinn er að kaupa af félaginu en það eru deildirnar sem skipuleggja og sjá um þjálfun iðkenda með vísan í liði c, d og e í 5. gr í samningsdrögunum. Hafnarfjarðarbær á ekki að setja deildir innan stærstu íþróttafélagana í þá stöðu að þurfa að semja við aðalstjórnir félaganna um hlutdeild í þjónustuframlagi bæjarins. Betri kostur er að bærinn setji skilyrði í samninginn við félagið um að tiltekið fyrirfram umsamið hlutfall af þjónustuframlaginu verði greitt til einstakra deilda í samræmi við framlag þeirra og iðkendafjölda. Umsamið hlutfall af greiðslunni fari til reksturs yfirstjórnar. Það fær ekki staðist að þjónustuframlag bæjarins fari eingöngu í það að greiða laun starfsmanna í yfirstjórn fjölgreinaíþróttafélags og skrifstofukostnað. Ef það verður niðurstaðan hefur endurskoðunin á þjónustusamningunum engu breytt.?
| 18.2. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir Íþrótta- og tómstundanefnd sendir fyrirspurn á samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins um hvort fyrirhugað sé að lengja opnunartíma Bláfjallasvæðis um helgar og hafa opið til 21:00 eins og á virkum dögum. Telur íþrótta- og tómstundanefnd að það væri hagur notenda að fá að nýta fjallið sem best á góðviðrisdögum. | | |
|
| 19. 2604001F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 422 | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | 19.1. 2603176 - Þjóðhátíðardagur 2026, 17.júní Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar kynninguna. | 19.2. 2604302 - Vinnuskóli Hafnarfjarðar 2026 Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir kynninguna. | | |
|
| 20. 2604017F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 423 | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | 20.1. 2604297 - Hafnarfjörður as a Future European City of Sport Lagt fram og íþróttafulltrúa falið að skoða málið frekar. | 20.2. 2604302 - Vinnuskóli Hafnarfjarðar 2026 Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir breytingar á þjónustusamnning Vinnuskóla Hafnarfjarðar við íþróttafélög í bænum. | 20.3. 2604300 - Frístundastyrkur 2025 Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir kynninguna. | 20.4. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir Lagt fram. | | |
|
| 21. 2604031F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 424 | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | 21.1. 2604302 - Vinnuskóli Hafnarfjarðar 2026 ÍTH þakkar Auði og Söndru kærlega fyrir kynninguna og fagnar sérstaklega samstarfsaðilum verkefnisins. | 21.2. 2604501 - ÍBH, tímaúthlutun sumar 2026 ÍBH falið að vinna að tímaúthlutun fyrir sumarið 2026 á sömu forsendum og fyrri ár. | 21.3. 2605080 - Aðsóknartölur í sundlaugar 2025 ÍTH fagnar aukningu á aðsókn í sundlaugar Hafnarfjarðarkaupstaðar. | 21.4. 2604119 - Sveitarstjórnarkosningar 2026, lýðræðisleg þátttaka barna, Krakkakosningar ÍTH fagnar þessu framtaki til að stuðla að aukinni lýðræðislegri vitund barna í barnvæna sveitarfélaginu Hafnarfirði. | 21.5. 2605081 - Íþrótta- og tómstundamessa 2026 ÍTH fagnar þessu verkefni. | 21.6. 2605082 - Samstarf Bergsins og Hafnarfjarðar ÍTH fagnar nýjum samning við Bergið og þeirri auknu þjónustu sem honum fylgir. | 21.7. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir Lagt fram. | | |
|