| |
| 1. 2602350 - Skráningardagar í leikskólum | | Minnisblað lagt fram. | | Skráningardagar 26 og 27 október 2026_minnisblað.pdf | | |
|
| 2. 2611150 - Íslenskar æskulýðsrannsóknir, kynning á niðurstöðum | | Jóna Rán Pétursdóttir forvarnarfulltrúi kynnir niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026. | Fræðsluráð þakkar forvarnarfulltrúa fyrir góða og upplýsandi kynningu. Ánægjulegt er að sjá jákvæðar niðurstöður meðal hafnfirskra barna og ungmenna. Sérstaklega vekur athygli að notkun samfélagsmiðla meðal nemenda á miðstigi fer minnkandi, félagsleg staða þeirra er sterk og þátttaka í íþróttastarfi er mikil. Jafnframt er ánægjulegt að sjá að börn upplifa mikinn stuðning frá fjölskyldum sínum og telja sig í ríkum mæli geta leitað aðstoðar þegar á þarf að halda. Fræðsluráð telur mikilvægt að byggja áfram á þessum jákvæðu niðurstöðum, efla forvarnarstarf og stuðla að því að öll börn og ungmenni í Hafnarfirði búi við öflugt stuðningsnet, félagslega virkni og góð skilyrði til að þroskast og dafna.
| | Fræðsluráð 11.11.26-Niðurstöður ÍÆ vor26.pdf | | Íslenska æskulýðsrannsóknin_Hafnarfjörður_vor2026.pdf | | |
|
| 3. 2611279 - Fyrirspurn Framsóknar til mennta- og lýðheilsusviðs um hagræðingaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins | | Fyrirspurn lögð fram. | | Sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs er falið að taka saman svör við fyrirspurnum Framsóknar. | | |
|
| 4. 2601013 - Skóladagatal 2026 - 2027 grunnskólar | | Breyting á skóladagatali Víðistaðaskóla lögð fram. | | Samþykkt. | | Víðistaðaskóli_Skóladagatal-2026-2027 v2.0.pdf | | |
|
|
| 6. 2611156 - Tillaga frá ungmennaráði - kynfræðsla og kynjafræði | | Lagt fram. | Fræðsluráð þakkar ungmennaráði fyrir greinargóða samantekt og tekur undir mikilvægi þess að öll börn í grunnskólum Hafnarfjarðar fái vandaða kynfræðslu og kynjafræðikennslu, óháð því í hvaða skóla þau eru. Eins er mikilvægt að börn og ungmenni hafi virka rödd varðandi þá fræðslu sem þeim stendur til boða hverju sinni, til að mynda í gegnum ungmennaráð bæjarins. Fræðslan er mikilvæg forvörn gegn ofbeldi, fordómum og jaðarsetningu og styður við börn í að þekkja eigin mörk og virða mörk annarra. Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að afla upplýsinga frá skólastjórnendum allra grunnskóla bæjarins um hvernig kynfræðslu og kynjafræðikennslu er háttað. Meðal annars verði kallað eftir upplýsingum um: - í hvaða árgöngum fræðslan fer fram og hvernig hún er skipulögð, - hversu miklum tíma er varið til hennar í hverjum árgangi, - við hvaða námsefni er stuðst, - hverjir annast kennsluna og hvort þeir hafi fengið sérstakan undirbúning eða fræðslu til þess. Niðurstöður verði lagðar fyrir fræðsluráð og kynntar ungmennaráði, svo hægt sé að meta hvort bregðast þurfi við til að tryggja jafnræði milli skóla og árganga.
Miðflokkurinn tekur undir að ráðast þurfi í heildstæða skoðun á því hvað kennt er í grunnskólum Hafnarfjarðar á sviði kynfræðslu og kynjafræði. Flokkurinn telur að slík kennsla eigi að vera í höndum menntaðra kennara og að kanna þurfi hvort hún eigi ekki heima innan viðeigandi námsgreina, eins og kveðið er á um í aðalnámskrá. Miðflokkurinn fordæmir að ófaglærðir og utanaðkomandi aðilar fái að koma inn í leik- og grunnskóla bæjarins og kenna efni sem ekki verður tengt við hæfniviðmið aðalnámskrár. Miðflokkurinn hefur óskað eftir upplýsingum um viðbragðsáætlanir grunnskóla þegar atvik koma upp og um það hvernig atvikaskráningu er háttað, en svör hafa enn ekki borist. Flokkurinn telur nauðsynlegt að fara yfir atvikaskráningar skólanna. Skoða þarf hvernig ofbeldi á sér stað innan veggja þeirra, eins og nemendur hafa sjálfir bent á, og hvernig tekið hefur verið á þeim málum. Miðflokkurinn telur að Hafnarfjarðarbær eigi ekki að greiða fyrir fræðslu sem ekki er getið í aðalnámskrá. Telji foreldrar eða forráðamenn að börn þeirra þurfi á slíkri fræðslu að halda ætti hún að vera á þeirra ábyrgð.
Foreldraráð Hafnarfjarðar tekur undir áhyggjur Ungmennaráðs af mögulegum mun á kynfræðslu og kynjafræði milli grunnskóla og árganga í Hafnarfirði. Mikilvægt er að öll börn fái vandaða, aldursmiðaða og samfellda fræðslu um þessi málefni, óháð því hvaða skóla þau sækja. Fræðsla um heilbrigð samskipti, persónuleg mörk, samþykki, fjölbreytileika og gagnkvæma virðingu er mikilvægur þáttur í öryggi og velferð barna. Foreldraráð telur jafnframt mikilvægt að skólarnir hafi aðgang að fræðslu frá sérhæfðum aðilum, svo sem Samtökunum ’78, sem getur verið góð viðbót við reglubundna kennslu og stuðlað að auknum skilningi og virðingu fyrir fjölbreytileika. Foreldraráð styður því tillögu Ungmennaráðs um úttekt á stöðu fræðslunnar í grunnskólum bæjarins og leggur áherslu á að niðurstöðum hennar verði fylgt eftir með skýrum aðgerðum þar sem úrbóta er þörf. Jafnframt telur ráðið mikilvægt að foreldrar fái upplýsingar um hvernig fræðslunni er háttað og að sjónarmið nemenda verði höfð til hliðsjónar við úttektina.
| | Tillaga frá Ungmennaráði - kynfræðslu og kynjafræði.pdf | | |
|
| 7. 2611157 - Tillögur ungmennaráðs í mars 2026 - fylgja eftir stöðu á málum | | Lagt fram. | Fræðsluráð þakkar ungmennaráði fyrir eftirfylgnina. Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að kanna stöðu eftirfarandi mála og gera grein fyrir því hvort og hvernig unnið hefur verið með þau: Samantekt um stöðu hvers máls verði lögð fyrir kynnt fyrir fræðsluráð og ungmennaráð.
| | Tillögur ungmennráðs í mars 2026 - fylgja eftir stöðu á málum.pdf | | |
|
| 8. 2610490 - Hraunið félagsmiðstöð - ósk um aðgengi að íþróttahúsi | | Til umræðu | | Fræðsluráð fagnar því að Hraunið fái aukið aðgengi að íþróttahúsi Víðistaðaskóla og hvetur aðrar félagsmiðstöðvar til að nýta ef hægt er enn frekar íþróttahús við þá skóla þar sem þau eru. | | |
|
| |
| 9. 2511508 - Fundargerðir mánaðarlegra samráðsfunda M&L með Í-mat | | Fundargerð lögð fram. | | |
|
|
| 11. 2610011F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 430 | | Fundargerð lögð fram. | | |
|
| 12. 2610017F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 431 | | Fundargerð lögð fram. | 12.1. 2512314 - Forvarnarstarf ÍTH þakkar forvarnarfulltrúa fyrir góða kynningu. Nefndin er jákvæð í garð vinnu við aðgerðaráætlun í forvarnarmálum og hvetur til að samhliða verði farið að vinna í endurgerð forvarnarstefnu Hafnarfjarðar. Lögð er áhersla á að íþrótta- og tómstundafélög sem og aðrir hagaðilar í Hafnarfirði komi að þeirri vinnu. | 12.2. 2609079 - Íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2026 Íþróttafulltrúa falið að kanna dagsetningar beggja vegna við áramótin og koma með tillögu á næsta fundi. Þá er íþróttafulltrúa falið að hefja undirbúning hátíðarinnar. | 12.3. 2610488 - 75 ára afmæli - beiðni um styrk ÍTH óskar Björkunum til hamingju með 75 ára afmælið en hafnar beiðni um gjöf á grundvelli samþykktar bæjarins um styrki og afmælisgjafir til íþrótta- og tómstundafélaga þar sem kveðið er á um að gjafir séu einungis veittar á tug-afmælum. | 12.4. 2610490 - Hraunið félagsmiðstöð - ósk um aðgengi að íþróttahúsi ÍTH felur íþróttafulltrúa að vinna að lausn með ÍBH. | 12.5. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs Lagt fram. ÍTH þakkar ungmennaráði fyrir heimboðið 6.október og býður nýja fulltrúa ungmennaráðs velkomin til starfa í nefndinni. | 12.6. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir Lagt fram. | | |
|
| 13. 2611002F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 432 | | Fundargerð lögð fram. | 13.1. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar Fannar Freyr Guðmundsson samþykktur einróma sem nýr varaformaður ÍTH. | 13.2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. Nefndin þakkar kynninguna og felur íþróttafulltrúa að ljúka heildstæðri og rekjanlegri greiningu á framlögum bæjarins til íþróttafélaga. Greiningin nái bæði til beinna og óbeinna framlaga og sýni framlag á hvern iðkanda hjá hverju félagi, sundurliðað eftir yngri og eldri iðkendum. Jafnframt verði gerð grein fyrir eignarhaldi og leigusamningum vegna mannvirkjanna. Þá verður tímaúthlutun ÍBH sérstaklega skoðuð, bæði þegar kemur að úthlutunarferli og nýtingu á tímum sem úthlutað er til ÍBH, og þeir tímar raktir til þeirra félaga sem nýta þá. Niðurstöður verði kynntar nefndinni. | 13.3. 2609079 - Íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2026 Ákveðin dagsetning fyrir íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2026 sem haldin verður 10.janúar 2027 í íþróttahúsinu Strandgötu. Lagt fram og samþykkt fyrirkomulag vegna framkvæmdar á kjöri á íþróttakarli, íþróttakonu og íþróttaliði ársins og íþróttafulltrúa og formanni ÍTH falið að hefja undirbúning. ÍBH falið að kalla eftir tilnefningum frá íþróttafélögum. Reglur um hátíðina og fyrirkomulag hennar verða lagðar fram til samþykkis á næsta fundi. | 13.4. 2611100 - Álagsstýring barna í íþróttum Lagt fram og íþróttafulltrúa falið að kanna hjá íþróttafélögum hvort fylgst sé með álagsstýringu á börn í íþrótta- og tómstundaiðkun. Niðurstöður könnunar kynntar á næsta nefndarfundi ÍTH. | 13.5. 2503150 - Barnvænt sveitarfélag, fræðsla Nefndin þakkar Oddvöru fyrir góða kynningu og fagnar góðu öflugu starfi ungmennaráðs Hafnarfjarðar. | 13.6. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs Lagt fram. | 13.7. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir Lagt fram | 13.8. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir Lagt fram | | |
|