| Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, |
| Auk ofantalinna sátu fundinn: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir þróunarfulltrúi leikskóla, Tinna Rós Steinsdóttir íþróttafulltrúi, Eiríkur Stephensen skólastjóri tónlistarskóla, Unnur Elfa Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólastjóra, Berglind Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Rósa Lyng Svavarsdóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Jóhanna Sigrún Jensdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólakennara, Logi Rafn Buchholz áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna, Margrét T. L. Hallgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna. |
| | | | 1. 2409024 - Opinn leikskóli | | Helga og Kristín stofnendur Memmm Play mæta til fundarins og kynna starfsemi Memmm Play. | | Fræðsluráð óskar Opna leikskólanum, Memmm play til hamingju með hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna árið 2026 og þakkar þeim kynninguna á starfi sínu. | | Memmm Play_Kynning Hafnafjörður nóv 26.pdf | | |
| | 2. 2406200 - Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum | | Minnisblað um stöðu innritunar lagt fram. | | Fræðsluráð þakkar þróunarfulltrúa fyrir samantektina. Fræðsluráð fagnar þeim góða árangri sem náðst hefur í leikskólum Hafnarfjarðar, þar sem börnum fæddum 21 júlí 2025 og fyrr hafa fengið boð um leikskólapláss. Þá er sérstaklega ánægjulegt að leikskólakennurum hefur fjölgað og hlutfall þeirra hækkað úr 26% í 29% frá því í apríl. Þessi jákvæða þróun er mikilvægur áfangi í eflingu faglegs starfs og þjónustu við börn og fjölskyldur í Hafnarfirði. | | Yfirlit á stöðu innritunar og faghlutfall í leikskólum_nov26.pdf | | |
| | 3. 2512228 - Menntasjóður | | Drög að endurskoðuðum reglum menntasjóðs lagðar fram. | | Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi drög að breytingu á úthlutun úr menntasjóði. | | Menntasjóður_reglur-endurskoðun 2026-drög.pdf | | |
| | 4. 2609182 - Starfsáætlanir grunnskóla 2026-2027 | | Starfsáætlanir lagðar fram. | | Fræðsluráð staðfestir framlagðar starfsáætlanir. | | Starfsáætlun Víðistaðaskóla 2026-2027.pdf | | Starfsáætlun Hvaleyrarskóla 2026-2027.pdf | | |
| | 5. 2611412 - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, reglur | | Til umræðu. | | Fræðsluráð felur stjórnendum tónlistarskóla Hafnarfjarðar að hefja vinnu við að endurskoða reglur skólans. | | |
| | | | 6. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs | | Fundargerð lögð fram. | | |
| | 7. 2611018F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 433 | | Fundargerð lögð fram. | 7.1. 2403565 - Allir með Minnisblað um stöðu mála lagt fram og ÍTH felur íþróttafulltrúa, í samstarfi við ÍBH, að kanna hjá íþróttafélögum í bænum hvort fleiri séu að bjóða uppá íþróttir fyrir fatlaða, sem og fjölda fatlaðra iðkenda hjá félögum. | 7.2. 2611341 - Íþróttaiðkun aldraðra ÍTH þakkar framkvæmdastjóra ÍBH fyrir kynninguna. Nefndin felur íþróttafulltrúa að kalla eftir upplýsingum frá barna- og fjölskyldusviði um nýtingu frístundastyrks eldri borgara. | 7.3. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir Lagt fram. | 7.4. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir Lagt fram | | |
|
|
| Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:45 |