| |
| 1. 2608196 - Fjölskyldu- og barnamálasvið - kynning á starfsemi | | Fjölskyldu- og barnamálasvið, kynning á starfsemi sviðsins fyrir kjörna fulltrúa. | | Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra fyrir kynninguna. | | |
|
| |
| 2. 2606576 - Þjónustusamningur um starfsendurhæfingu | | Lagt fram. | | Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að gerð þjónustusamnings við Stendur starfsendurhæfingu. | | Skipulagsskrá fyrir Stendur starfsendurhæfingu 19. nóv2025.pdf | | Stendur - samstarfssamningur - greinargerð 18.8.2026.pdf | | |
|
| 3. 1602410 - Fjölmenningarráð | | Lögð fram drög að nýju erindisbréfi. | | Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti nýtt erindisbréf fjölmenningarráðs og vísar því til umfjöllunar í bæjarráði. Helstu breytingar með nýju erindisbréfi eru þær að fjölmenningarráð heyrir undir bæjarráð enda er fjölmenningarfulltrúi starfsmaður þjónustu- og þróunarsviðs. Fjölskylduráð telur mikilvægt að ekki dragist að samþykkja nýtt erindisbréf svo hægt verði að skipa nýtt fjölmenningarráð sem fyrst. | | |
|
| 4. 2601229 - Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjarvíkurborgar (VoR) | | Samningur milli Hafnarfjarðarbæjar og Reykjavíkurborgar um aðkeypt stöðugildi í VoR teymi borgarinnar er lagður fram til afgreiðslu. | Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samning milli Hafnarfjarðarbæjar og Reykjavíkurborgar og felur sviðsstjóra að undirbúa undirskrift samningsins. Fjölskylduráð fagnar fyrirliggjandi samningi við Reykjavíkurborg enda er hér um að ræða mikilvæga viðbót í þjónustu við fólk með fjölþættan vanda.
Framsókn fagnar því að loksins sé komið á samstarf Hafnarfjarðarbæjar við Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar. Þetta er mikilvægt skref í að efla stuðning við íbúa sem glíma við fjölþættan og flókinn vanda. Með samstarfinu nýtur Hafnarfjarðarbær dýrmætrar reynslu og þekkingar teymisins, um leið og byggð er upp sérþekking innan sveitarfélagsins. Framsókn leggur áherslu á snemmtækan, heildstæðan og einstaklingsmiðaðan stuðning og fagnar því að verið sé að styrkja þjónustu við íbúa með þessum hætti. | | Vor teymi - samningr - greinargerð 18.8.2026.pdf | | VEL- VoR - Samstarfssamningur við Hafnarfjarðarbæ 6.8.2026.pdf | | Vinnslusamningur VOR teymi (002).pdf | | |
|
| 5. 2608095 - Specialisterne (Sérfræðingarnir) - beiðni um endurnýjun á samningi | | Lagt fram. | | Fjölskylduráð samþykkir endurnýjun á samningi út árið og felur sviðsstjóra undirbúa gerð nýs samnings og vísar þeirri vinnu til gerð fjárhagsáætlunar. | | Specialisterne - samningur um þjónustu18.8.2026.pdf | | |
|
| 6. 2403403 - Barnavernd - staða mála | | Lagt fram til kynningar. | | Fjölskylduráð þakkar kynninguna. | | |
|
| 7. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar | Á fundi bæjarráðs þ. 9.júli sl. var eftirfarandi tekið fyrir: 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar
Teknar fyrir kosningar til öldungaráðs til 4 ára og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til 4 ára.
Eftirfarandi kosnir í Öldungaráð:
Aðalfulltrúi Valgerður María Guðmundsdóttir, Norðurbakka 13B (S) Aðalfulltrúi Elsa Dóra Grétarsdóttir, Herjólfsgötu 32 (D) Aðalfulltrúi Þórarinn Þórhallsson, Smyrlahraun 6. (B)
Varamaður Auðbergur Magnússon, Hverfisgata 4 (C) Varamaður: Guðmundur Fylkisson, Móabarð 20. (B) Sigrid Foss, Arnarhraun, 40 (S)
Eftirfarandi kosnir í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks:
Formaður Hermann Ingi Stefánsson, Drangsskarði 17C (S) Varaformaður Ágústa Sigurjónsdóttir, Gauksási 11 ( C) Aðalfulltrúi Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, Miðvangur 10 (B) | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| |
| 8. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði | | Fundargerð SSH um velferðarmál frá 3. júní sl. | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 9. 0701243 - Málskot | Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 22-25/2026. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. | | |
|