Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 105

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
10.06.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi,
Katrín Heiðar aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2605616 - Skógarás 6, breyting
Sigurður Hilmar Ólafsson f.h. lóðarhafa sækir 01.06.2026 um breytingu frá áður samþykktum uppdráttum. Stigi milli hæða fjarlægður og stigaop klætt.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2604003 - Brekkuás 8, breyting
Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. lóðarhafa leggur 01.04.2026 inn reyndarteikningar vegna lokaúttektar á húsi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2606156 - Axlarás 16, breyting
Hugrún Þorsteinsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 05.06.2026 um breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2606157 - Axlarás 18a, breyting
Hugrún Þorsteinsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 05.06.2026 um breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2606158 - Axlarás 18b, breyting
Hugrún Þorsteinsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 05.06.2026 um breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2606159 - Axlarás 20, breyting
Hugrún Þorsteinsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 05.06.2026 um breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2606160 - Axlarás 22, breyting
Hugrún Þorsteinsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 05.06.2026 um breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 2605385 - Drangsskarð 15a, breyting
Lárus Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir 19.05.2026 um að skipta upp íbúð 0104 í tvær íbúðir sem verða 0104 og 0204. Settur er EI90 veggur í íbúð 0104 á 1. hæð sem skilur að íbúðirnar. Bætt er við bílastæði að ofanverðu við húsið. Búið er að framkvæma verkið.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
9. 2507031 - Stálhella 4, MHL.02, byggingarleyfi
Ívar Hauksson f.h. lóðarhafa sækir 01.07.2025 um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði undir léttan iðnað. Stálgrindarhús.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
10. 2512644 - Straumhella 26, breyting, milliloft
Jón Grétar Magnússon f.h. lóðarhafa sækir 17.12.2025 um breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi. Milliloft fellt út.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
11. 2605166 - Selhella 2, reyndarteikning
Tómas Ellert Tómasson f.h. lóðarhafa leggur 08.05.2026 inn reyndarteikningar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
12. 2606155 - Norðurbraut 33, niðurrif
Snorri Kristjánsson sækir þann 05.06.2026 um leyfi til að rífa gamlan bílskúr sem stendur á lóðinni Norðurbraut 33.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
13. 2605488 - Norðurbakki 17b, íbúð 02 0504, svalalokun
Elín Helgadóttir sækir þann 22.05.2026 um svalalokun á íbúð 02 0504 samkvæmt teikningum Sigurðar Einarssonar samþykktum 23.08.2023.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
14. 2409567 - Hringbraut 36, breyting
Andri Ingólfsson Arkitekt slf. f.h. lóðarhafa sækir 17.09.2024 um að fá svalir samþykktar við íbúð 0201 og byggja bílskúr á lóðinni.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
C-hluti tilkynningarskyldar framkvæmdir
15. 2601352 - Álfaskeið 30, tilkynningarskyld framkvæmd
Örn Arnarson f.h. lóðarhafa tilkynnir 16.01.2026 um framkvæmd. Steyptur veggur á 1. hæð, sem skilur að herbergi og stofu, fjarlægður frá gólfplötu upp að lofti. Í vegg sem skilur að anddyri og núverandi eldhús er sagað op fyrir hurð. Hringstiga er komið fyrir á milli kjallara og 1. hæðar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
D-hluti fyrirspurnir
16. 2605518 - Háaberg 1, smáhýsi á lóð
Vilhjálmur Magnússon leggur inn fyrirspurn um smáhýsi á lóð.
Tekið er jákvætt í erindið.
F-hluti önnur mál
17. 2605310 - Súlusprettur Red Bull, stöðuleyfi, viðburður
Ingveldur María Hjartardóttir f.h. Steindal ehf. sækir þann 15.05.2026 um leyfi til viðburðarhalds, Súlusprettur Red Bull, við höfnina þann 11.07.2026 milli kl. 14-16. Uppsetning föstudaginn 10.07.2026 eftir samkomulagi.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir afnot af svæði við höfnina vegna viðburðarhalds í tengslum við Súlusprett Red Bull. Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni og í samráði við Hafnarstjóra. Allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi.
18. 2605589 - Norðurbakki, viðburður
Áslaug Jónsdóttir sækir 27.05.2026 um leyfi til viðburðarhalds, Wuthering heights day, á Norðurbakka þann 25.07.2026 milli kl. 16:00 og 18:00.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa heimilar afnot af landi við Norðurbakka í tengslum við Wuthering heights day. Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi.
19. 2606003 - 17. júní 2026, stöðuleyfi vegna viðburða
Sunna Magnúsdóttir f.h. Hafnarfjarðarbæjar sækir 30.05.2026 um stöðuleyfi vegna hátíðarhalda víðs vegar um bæinn.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi vegna viðburða í tengslum við þjóðhátíðardaginn.
20. 2606285 - Hvaleyrarvatn, viðburður
Harpa Gústavsdóttir f.h. Hagkaupa sækir um leyfi fyrir viðburðarhaldi við Hvaleyrarvatn þann 23.06.2026 milli kl. 16-18. Viðburðurinn er krakkaskemmtun þar sem gert er ráð fyrir hlaupi kringum vatnið og grilli við vesturenda Hvaleyrarvatns að hlaupi loknu.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa heimilar afnot af landi við Hvaleyrarvatn. Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi.
21. 2606222 - Norðurvangur 18, dagsektir
Skorað hefur verið á eigendur Norðurvangs 18 að fjarlægja skúr sem staðsettur er á lóðinni. Staðsetning skúrsins fer út fyrir lóðar- og sveitarfélagsmörk auk þess sem stærð skúrsins fellur ekki innan þeirra stærðarmarka sem heimilar uppsetningu skúra/kofa innan lóða án byggingarleyfis. Eigendum hafa verið send bréf vegna þessa dags. 29.04.2026 og 20.05.2026. Ekki hefur verið brugðist við.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir 20.000 kr. pr. dag, á lóðarhafa Norðurvangs 18, frá og með 26.06.2026 skv. heimild 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45 

Til bakaPrenta