| |
| 1. 2606149 - Erindisbréf ráða og nefnda | | Uppfært erindisbréf menningar- og ferðamálanefndar lagt fram. | | Samþykkt. | | MenningarOgFerdamalanefndErindisbref2026_drog.pdf | | |
|
| 2. 2604146 - Björgvin Halldórsson, ævi og störf, sýning | | Björn Pétursson mætir til fundarsins. Minnisblað lagt fram. | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar bæjarminjaverði fyrir greinargóða kynningu og minnisblað um fyrirhugaða sýningu um ævi og tónlistarferil Björgvins Halldórssonar. Nefndin tekur mjög jákvætt í þær hugmyndir sem þar koma fram um metnaðarfulla sýningu í Góðtemplarahúsinu og telur verkefnið viðeigandi og verðugan vettvang til að varðveita og miðla sögu og ævistarfi Björgvins. Menningar- og ferðamálanefnd vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.
| | minnisblad-BH-Sýning -02.pdf | | |
|
| 3. 2605078 - St. Jósefsspítali, 100 ára, útgáfa bókar | | Björn Pétursson, bæjarminjavörður mætir til fundarins. | Menningar- og ferðamálanefnd tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að saga St. Jósefsspítala, St. Jósefssystra og starfseminnar sem þar hefur farið fram verði varðveitt og miðlað.
Nefndin leggur til að kannaðir verði tveir möguleikar á útfærslu verkefnisins. Annars vegar að Byggðasafn Hafnarfjarðar gefi út smárit um sögu St. Jósefsspítala í anda fyrri smárita safnsins. Hins vegar, ef stefnt er að umfangsmeiri bókaútgáfu, að Hafnarfjarðarbær styðji við verkefnið og hollvinasamtökin kanni leiðir að útgáfu í samræmi við fyrirkomulag sambærilegra verkefna, svo sem útgáfu sögu í tilefni 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar.
Umsögninni er vísað til bæjarráðs.
| | |
|
| 4. 2605083 - Viðburðir, sumarið 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir þá viðburði sem liðnir eru og þá sem eftir eru sumars. | | |
|
| 5. 2608310 - Heimar og himingeimar, Bókasafn Hafnarfjarðar, 2026 | | Rætt um Heima og himingeima sem haldin verður fyrstu helgina í september í nýjum húsakynnum bókasafnsins í Firði. | Menningar- og ferðamálanefnd hvetur Hafnfirðinga og aðra gesti til að sækja hátíðina Heima og himingeima sem fram fer í Bókasafni Hafnarfjarðar dagana 4.?6. september. Nefndin fagnar því að hátíðin fái nú að njóta sín í nýjum og glæsilegum húsakynnum bókasafnsins í Firði og þakkar starfsfólki fyrir metnaðarfulla dagskrá og undirbúning hátíðarinnar.
| | |
|
| 6. 2512005 - Menningarstyrkir 2026 | | Auglýst hefur verið eftir umsóknum um menningarstyrki í seinni úhlutun ársins 2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd vekur athygli á að umsóknarfrestur í síðari úthlutun menningarstyrkja er til og með 7.september n.k. | | |
|
| 7. 2608309 - Ósk um samstarf, gítarhátíð í Hafnarfirði | | Ósk um samstarfssamning lögð fram. | Menningar- og ferðamálanefnd tekur jákvætt í erindið og fagnar þeirri framtíðarsýn sem þar kemur fram um áframhaldandi uppbyggingu Gítarveislu Bjössa Thor í Hafnarfirði. Nefndin felur verkefnastjóra menningarmála að undirbúa drög að samstarfssamningi við Gítarveislu Bjössa Thor til næstu þriggja ára og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
| | |
|
| 8. 2608181 - Jólaþorpið 2026 | | Rætt um framkvæmd Jólaþorpsins 2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd felur verkefnastjóra að hefja undirbúning og auglýsa opnun umsókna að söluhúsum í Jólaþorpinu, leiguverð á helgi fyrir hefðbundið söluhús verður 26.900 kr og leiguverð miðjuhússins 53.800 kr. Opnunarhelgi Jólaþorpsins verður 13. - 15. nóvember 2026. | | |
|
| 9. 2608319 - Aðgerðaráætlun menningar- og ferðamálanefndar 2026-2029 | | Rekstraryfirlit menningarmála kynnt. | | |
|
| 10. 2608303 - Farþegaskip í Hafnarfjarðarhöfn | | Greinagerð um farþegaskip í Hafnarfirði sumraið 2026 lögð fram. Adolf Jónsson, verkefnastjóri farþegaskipa kom til fundarsins. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar verkefnastjóra góða kynningu á sumrinu 2026 og fagnar góðum árangri og vexti í móttöku farþegaskipa. Nefndin leggur áherslu á að nýta tækifærin sem fram koma í greinargerðinni, sérstaklega hvað varðar tengingu hafnar og miðbæjar, þjónustu við gesti og samstarf við staðbundna þjónustuaðila, sem og áframhaldandi uppbyggingu fyrir sumarið 2027. | | Farþegaskipin í Hafnarfirði 2026.pdf | | Greinagerð fyrir Farþegaskipin í Hafnarfirði 2026.pdf | | |
|