Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 85

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
29.10.2025 og hófst hann kl. 10:30
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2510258 - Óseyrarbraut 12B, breyting á deiliskipulagi
Kristján Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 14.10.2025 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að syðri hluti byggingarreits lóðar Óseyrarbrautar 12B stækkar til austurs og vesturs. Mörk byggingarreitsins að lóðunum Óseyrarbrautar 8-10 og 12-14 eru lagfærð og lengd sameiginlegrar lóðalínu Óseyrarbrautar 8-10 með Óseyrarbraut 12B er leiðrétt.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar samþykki lóðarhafa hafa borist.
Óseyrarbraut 12B reitur 4.2, breytt deiliskipulag, tillaga í grennd amt.pdf
2. 2510181 - Hellisgata 13, breyting á deiliskipulagi
Einar Ingi Reynisson sækir 08.10.2025 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að fallið er frá skilmálum um viðbyggingu við núverandi íbúðarhús til að varðveita upprunalega formgerð þess. Í staðinn verði skilgreindur nýr stakstæður byggingarreitur fyrir vinnustofu á einni hæð með risi á norðanverðri lóðinni fyrir sambærilega byggingarheimild. Grunnflötur byggingarinnar verður allt að 25 ferm. að frátöldum hleðsluveggjum. Með breytingunni er nýtingarhlutfall aukið úr 0,25 í 0,34.
Tekið er neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13.10.2025.
Hellisgata 13, umsögn skipulags.pdf
3. 2510479 - Straumhella 1-3, breyting á deiliskipulagi
Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa sækir 23.10.2025 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðirnar Straumhella 1 og 3 eru sameinaðar í eina, gerður er nýr sameinaður byggingarreitur, nýtingarhlutfall helst óbreytt.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Straumhella 1-3 deiliskipulagsbreyting_LOKA.pdf
4. 2509815 - Ljósatröð, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 24.09.2025 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi veitulóðar við Ljósatröð. Erindið var grenndarkynnt frá 30.09.2025 til 28.10.2025.
Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
5. 2508332 - Gauksás 25, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 24.09.2025 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Lárusar Kristins Ragnarssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í stækkun lóðar með tilfærslu á lóðarmörkum suðurhluta lóðar. Stækkað er í átt að útivistarsvæði.
Erindið var grenndarkynnt frá 26.09.2025 til 24.10.2025.
Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
D-hluti fyrirspurnir
6. 2510464 - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi, fyrirspurn
Helgi Mar Hallgrímsson f.h. Bygma Ísland leggur 21.10.2025 fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi. Óskað er eftir að falla frá kvöð um lagnir á lóðinni, stækka byggingarreit, hækka nýtingarhlutfall og hækka húshæð.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27.10.2025.
Óseyrarbraut 26, umsögn skipulags.pdf
7. 2510329 - Norðurbakki 1-3, fyrirspurn
Ragnar Lárusson f.h. stjórnar húsfélagsins Norðurbakka 1-3 leggur 15.10.2025 fram fyrirspurn varðandi aðkomu vöruflutningabifreiða til og frá þjónusturýmum á Norðurbakka 1.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20.10.2025.
Norðurbakki 1-3, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15 

Til bakaPrenta