Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 581

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
30.09.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
Árni Stefán Guðjónsson varaformaður,
Elín Anna Baldursdóttir aðalmaður,
Eva Rún Helgadóttir aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, 
Auk ofantalinna sátu fundinn:
Árný Steindóra Steindórsdóttir sviðsstjóri, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir þróunarfulltrúi leikskóla, Berglind Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Margrét Össurardóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Jóhanna Sigrún Jensdóttir áheyrnafulltrúi starfsfólks leikskóla, Logi Rafn Buchholz fulltrúi ungmennaráðs, Guðrún Telma Steindórsdóttir varafulltrúi ungmennaráðs, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna, Margrét T. L. Hallgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601014 - Skóladagatal 2026 - 2027 leikskólar
Breyting á skóladagatali Víðivalla lögð fram til samþykktar.
Samþykkt.
Leikskóladagatal 2026-2027 - Víðivellir -uppfærð útgáfa.pdf
Víðivellir_samþykkt foreldraráðs v. breytinga á skóladagatali 2026-2027.pdf
2. 2201751 - Skóladagatal 2022-2023 leikskólar
Minnisblað lagt fram vegna skertra skipulagsdaga í leikskólum.
Fræðsluráð samþykkir breytingar á fyrirkomulagi skertra skipulagsdaga fyrir næsta skólaár í leikskólum þannig að skólastjórnendum verði heimilt að ákveða, í samræmi við skipulag hvers leikskóla, hvaða dagar verði tilgreindir sem skertir skipulagsdagar í skóladagatali.
Bókun leikskólastjóra vegna skertra daga.pdf
3. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Þorgeir Hafsteinn Jónsson rekstrarstjóri mætir til fundarins og fer yfir sex mánaða uppgjör.
Rekstrarstjóra þökkuð kynningin.
4. 2406062 - Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
Til umræðu
Fræðsluráð tekur undir áhyggjur samtaka stjórnenda í velferðarþjónustu og félags fræðslustjóra um að erfitt geti verið að halda úti lögbundinni þjónustu án sérstaks fjármagns frá ríkinu. Í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi eru framlög til sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældarlaga að fjárhæð 1,1 milljarður króna afnumin en mikilvægt er að eyða allri óvissu um framkvæmd farsældarlaga í þágu barna.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar - farsæld barna 2026.pdf
Minnisblað_samþætting þjónustu í þágu farsældar barna staða mála_2406062.pdf
5. 1804550 - Nú framsýn menntun, þjónustusamningur
Erindi lagt fram.
Erindi Nú framsýn vísað til vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Erindi frá NÚ_september2026.pdf
6. 2602349 - Samningar um afnot af eignum sem heyra undir mennta- og lýðheilsusvið
Drög að samning lögð fram til afgreiðslu.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samning.
Reglur um sundlaugar í eigu Hafnarfjarðarkaupstaðar 2026.pdf
7. 2609514 - Fimleikafélagið Björk
Til umræðu.
Fræðsluráð bókar eftirfarandi, Fimleikafélagið Björk er eitt af stærstu íþróttafélögum bæjarins og starfsemi þess er okkur, börnum, foreldrum og bæjarfélaginu öllu afar mikilvæg. Hjá Björkunum æfa yfir 1.000 börn og ungmenni, auk eldra afreksfólks. Fyrir mörg þessara barna er Björk stór hluti af þeirra daglega lífi. Þess vegna skiptir okkur miklu máli að starfsemi félagsins hljóti ekki hnekki vegna þess rekstrarvanda sem félagið stendur nú frammi fyrir.
Fræðsluráð mun tryggja að það öfluga starf sem hefur verið byggt upp hjá Björkunum haldi áfram og að ekki verði rof á æfingum eða starfsemi.
8. 2609527 - Samfés, leigusamningur
Samningur lagður fram.
Fræðsluráð fagnar því að fá Samfés, landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa í bæinn. Samfés gegnir mikilvægu hlutverki í frítímastarfi barna og ungmenna um allt land og leggur áherslu á virka þátttöku, lýðræði og vellíðan ungs fólks. Fræðsluráð sér tækifæri í nálægðinni, meðal annars til aukins samstarfs við félagsmiðstöðvar og ungmennamiðstöðvar bæjarins, og væntir góðs samstarfs á komandi árum.
Fundargerðir
9. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.
Ungmennaráð_fundargerð_220926.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til bakaPrenta