| |
| 1. 2601431 - Skuldabréfaútgáfa 2026 | | Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. | | Bæjarráð samþykkir sölu skuldabréfa úr skuldabréfaflokknum HFJ 50 1 að fjárhæð 1.860m.kr.að nafnvirðiá ávöxtunarkröfunni 4,05%.Heildartilboð í skuldabréfaflokkinn voru samtals 1.860m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,94%-4,05%. Heildarstærð skuldabréfaflokksins er 9.410m.kr. að nafnvirði eftir útboðið | | Tillaga til bæjarráðs vegna sölu skuldabréfa - Nóvember 2026.pdf | | |
|
| 2. 2605181 - Umsókn um vilyrði fyrir lóð, Birkihellu, Furuhellu | | Lögð fram beiðni Hamravalla atvinnuhúsa ehf. um framlengingu lóðarvilyrðis við Birkihellu/Furuhellu. | | Bæjarráð samþykkir framlengingu á vilyrði fyrir lóð. | | 4112_001.pdf | | |
|
| 3. 2611230 - Reglur um nýjar fjárfestingar | | Lögð fram drög að reglum um takmörkun nýrra fjárfestinga sveitarfélagsins til næstu tveggja ára | Fulltrúi Miðflokksins leggur til eftirfarandi breytingar á fyrirliggjandi drögum að reglum um fjárfestingarverkefni Hafnarfjarðarbæjar árið 2027:
1. Forgangsröðun óhafinna framkvæmda Við 2. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi: „Nýframkvæmdir sem hvorki eru hafnar né bundnar samningi við þriðja aðila skulu sæta sérstakri forgangsröðun bæjarráðs áður en til útboðs eða annarrar bindandi skuldbindingar kemur, þótt þær séu þegar á samþykktri fjárfestingaráætlun.“
2. Framlög samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins Við 1. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi: „Reglur þessar taka einnig til fjárfestingaframlaga og fjárskuldbindinga Hafnarfjarðarbæjar samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Áður en stofnað er til nýrra eða aukinna fjárskuldbindinga umfram gildandi samninga skal leggja fyrir bæjarstjórn sérstakt mat á fjárhagslegum áhrifum þeirra og fjármögnun. Fjármálasvið skal ársfjórðungslega leggja fyrir bæjarráð yfirlit yfir greiðslur bæjarins samkvæmt sáttmálanum og áætlaðar eftirstöðvar skuldbindinga.“
Bæjarráð vísar reglunum til staðfestingar í bæjarstjórn og felur bæjarstjóra um leið að vinna reglurnar fyrir fund bæjarstjórnar í samræmi við umræður.
| | Reglur vegna fjárfestingaverkefna á árinu 2027_UPPFÆRT.pdf | | |
|
| 4. 2611210 - Ráðningarnefnd | | Lögð fram drög að reglum um ráðningabann. | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi reglur og þær gildi í tvö ár.
Fulltrúi Miðflokksins styður að ráðningar verði takmarkaðar í samræmi við hagræðingaraðgerðir sem bæjarráð samþykkti 29. október 2026. Ráðningabann sem byggist á starfsmannaveltu getur þó leitt til þess að störfum fækki án þess að heildstæð forgangsröðun verkefna hafi farið fram. Enn er starfsfólk á launum hjá Hafnarfjarðarbæ að sinna verkefnum sem sveitarfélaginu er ekki skylt að sinna samkvæmt lögum og byggjast á pólitískum áherslum kjörinna fulltrúa. Í ljósi alvarlegrar fjárhagsstöðu bæjarins telur fulltrúinn eðlilegt að slík verkefni og stöðugildi tengd þeim verði sérstaklega tekin til endurskoðunar frekar en að dregið sé úr lögbundinni grunnþjónustu.
Miðflokkurinn óskar eftir sundurliðuðu yfirliti yfir stöðugildi Hafnarfjarðarbæjar eftir starfsheitum og sviðum.
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar leggur áherslu á að ráðningabannið nái ekki til starfa sem tengjast lögbundnum skyldum sveitarfélagsins. Þeim verkefnum verður áfram sinnt af ábyrgð og metnaði. Ráðningabanninu er ekki ætlað að hafa neikvæð áhrif á lögbundna grunnþjónustu við íbúa.
Samhliða aðhaldsaðgerðum er mikilvægt að horfa til þess hvernig starfsemi sveitarfélagsins er skipulögð og hvernig nýta megi mannauð og fjármagn sem best. Því verður farið í frekari greiningar á störfum og verkefnum, með það að markmiði að samræma verkefni, straumlínulaga verkferla og skoða tækifæri til aukinnar hagkvæmni.
Markmiðið er að bæta starfsaðstæður starfsfólks, efla skilvirkni í starfsemi bæjarins og tryggja áfram góða þjónustu við íbúa. Meirihlutinn telur mikilvægt að slíkar breytingar byggist á faglegri greiningu og heildstæðu mati á starfsemi sveitarfélagsins, þannig að ekki sé gengið á lögbundna grunnþjónustu.
| | Reglur um ráðningarbann nóv2026.pdf | | |
|
| 5. 2510191 - Fríkirkjan í Hafnarfirði, safnaðarheimili, endurbætur | | Lagt fram bréf með ósk um frekari stuðning við endurbætur safnaðarheimilis. | | Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. | | Bréf til Hafnarfjarðar 20 okt 2026.pdf | | |
|
| 6. 2611265 - Þjóðarleikvangur í golfi, uppbygging nýs golfsvæðis | | Lögð fram yfirlýsing Golfsambands Íslands | | Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn GSÍ. | | Yfirlýsing_GSI (1).pdf | | |
|
| 7. 2611267 - Fjárhagsáætlun skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 2027 | | Lagt fram til afgreiðslu. | Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til vinnu við fjárhagsáætlun 2027.
Fulltrúi Miðflokksins situr hjá. | | Fylgibréf_skíðasvæðin hfj_.pdf | | 1. Fjárhagsáætlun skíðasvæðanna 2027..pdf | | 2. Fundargerð 442. fundar samstarfsnefndar skíðasvæðanna 201026.pdf | | |
|
| 8. 2507066 - Sjálfseignarstofnunin Geymd, Safnið | | Lagt fram bréf um samstarf Geymdar og Hafnarfjarðarbæjar um menningarf | | Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram og ræða við forsvarsmenn Geymdar. | | Samstarf Geymdar og Hafnarfjarðarbæjar um menningararf.pdf | | |
|
| 9. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi | | Fulltrúi Framsóknarflokksins og Miðflokksins óska eftir málinu á dagskrá. Til umræðu. | | Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram með forsvarsmönnum Skólastræti ehf. og málið verði lagt fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar. | | |
|
| 10. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar | | Breyting á fulltrúa Miðflokksins í golfhópi. Inn kemur Stefán Sveinn Gunnarsson í staðinn fyrir Einar Geir Þorsteinsson. | | Samþykkt. | | |
|
| 11. 2005180 - Samgöngusáttmáli | | Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir málinu á dagskrá. Til umræðu. | | |
|
| |
| 12. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar | | Lagðar fram fundargerðir framkvæmdahópsins frá 21.september og 9.nóvember sl. | | |
|
| 13. 2610028F - Hafnarstjórn - 1712 | | Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 28.október sl. | | |
|
| 14. 2610025F - Menningar- og ferðamálanefnd - 482 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 4.nóvember sl. | | |
|
| 15. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.október sl. | | |
|
| 16. 2502502 - Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16.október sl. | | |
|
| 17. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 2.nóvember sl. | | |
|
| 18. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026 | | Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 15. október og 5.nóvember sl. | | |
|