Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3713

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
20.08.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir varamaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2005180 - Samgöngusáttmáli
Fulltrúar frá Betri samgöngum ohf. mæta og kynna árshelmingaskýrsluna
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.
Fylgibréf HFJ - samgöngusáttmálinn sex mánaða skýrsla BS 2026 1.pdf
Árshelmingsskýrsla Betri samgangna 06.2026.pdf
2. 2501729 - Barnvænt sveitarfélag, aðgerðaráætlun
Kynning á stöðu verkefnisins Barnvænt sveitarfélag. Þórunn Þórarinsdóttir verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags mætir til fundarins.
Bæjarráð þakkar kynninguna.

Framsókn leggur fram eftirfarandi bókun: Hafnarfjörður hefur hlotið viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag og þeirri viðurkenningu fylgir bæði ábyrgð og skýr skuldbinding. Barnvænt sveitarfélag verður ekki til með vottuninni einni saman heldur með því að sjónarmið, réttindi og þarfir barna séu höfð að leiðarljósi í ákvörðunum sveitarfélagsins á hverjum degi.

Mikilvægt er að fylgja verkefninu eftir af festu og ábyrgð, tryggja því nauðsynlegan stuðning og skapa svigrúm til frekari þróunar. Hér eigum við ekki að láta staðar numið heldur frekar að gefa í. Hlusta enn betur á börn og ungmenni, efla þátttöku þeirra og tryggja að rödd þeirra hafi raunverulegt vægi þegar teknar eru ákvarðanir sem varða líf þeirra og framtíð.

Barnvænn Hafnarfjörður á að vera lifandi verkefni sem sjá má í allri þjónustu og starfsemi bæjarins.

3. 2608260 - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, 2026-2030, samvinna í þágu barna
Lagt fram til kynningar. Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri farsældarráðs mætir til fundarins.
Bæjarráðs þakkar Hönnu Borg kynninguna.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði og fræðsluráði.

Bæjarráð fagnar framlagðri aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 og styður samþykkt hennar. Vinna í þágu barna er eitt mikilvægasta verkefni samfélagsins. Þegar börn þurfa stuðning skiptir öllu að þjónustan sé aðgengileg, að ólíkir aðilar vinni saman og að barnið og fjölskyldan þurfi ekki sjálf að rata á milli kerfa. Þess vegna eru áherslur áætlunarinnar á samþætta þjónustu, bætt upplýsingaflæði og öflugra samstarf sérstaklega mikilvægar. Við fögnum jafnframt skýrum áherslum á bætta líðan barna í skólum, öflugri forvarnir og geðrækt, sterkara samstarf heimila og skóla, aukið öryggi barna og jafnræði. Sérstaklega er mikilvægt að horfa til barna í viðkvæmri stöðu og grípa snemma inn í þegar merki eru um að barn þurfi stuðning. Það er styrkur aðgerðaáætlunarinnar að henni fylgja skilgreindar aðgerðir, ábyrgð og mælikvarðar. Nú skiptir mestu að henni verði fylgt eftir af festu. Gert er ráð fyrir árlegri framvinduskýrslu og endurskoðun aðgerða, forgangsröðunar og kostnaðaráætlunar sem við teljum mikilvægt til að tryggja að áætlunin verði lifandi verkfæri en ekki skjal sem situr uppi í hillu. Samvinna sveitarfélaga, skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, íþróttahreyfingar, foreldra og annarra sem koma að lífi barna getur skipt sköpum. Við styðjum þessa vegferð og leggjum áherslu á að Hafnarfjörður verði áfram virkur og metnaðarfullur þátttakandi í henni. Þegar kemur að farsæld barna eigum við alltaf að leitast við að gera betur.

2502003-Aðgerðaáætlun farsældarráðs-Minnisblað.pdf
Aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 06072026.pdf
Fylgibréf aðgerðaáætlun - Hafnarfjörður.pdf
Samstarfssamningur sveitarfélaganna um stofnun farsældarráðs.pdf
4. 2604468 - Reykjanesbraut, lóðarvilyrði
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Viljayfirlýsing Hafnarfjörður og EGG fasteigna.pdf
5. 1602410 - Fjölmenningarráð
3. liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 18.ágúst
Lögð fram drög að nýju erindisbréfi.

Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti nýtt erindisbréf fjölmenningarráðs og vísar því til umfjöllunar í bæjarráði. Helstu breytingar með nýju erindisbréfi eru þær að fjölmenningarráð heyrir undir bæjarráð enda er fjölmenningarfulltrúi starfsmaður þjónustu- og þróunarsviðs. Fjölskylduráð telur mikilvægt að ekki dragist að samþykkja nýtt erindisbréf svo hægt verði að skipa nýtt fjölmenningarráð sem fyrst.

Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð vísar erindisbréfinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

Erindisbréf fjölmenningarráðs18.8.2026.pdf
6. 2608093 - Siglingaklúbburinn Þytur, grunnaðstaða, endurnýjun
Lagt fram erindi frá Siglingaklúbbnum Þyt, dags. 23.júlí sl., varðandi endurnýjun á grunnaðstöðu félagsins
Bæjarráð vísar erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun.
Erindi til bæjarstjornar Hafnarfjardar júlí 2026.pdf
7. 2511201 - Vigdísarholt ehf, viljayfirlýsing, samstarf, nýtt hjúkrunarheimili, Vatnshlíð
Úthlutun á þróunarreit.
Lóðinni verður úthlutað til Lífsgæði þróunarfélags ehf. kt. 570226-0960, sem er í samstarfi við Vigdísarholt ehf. í samræmi við samkomulag milli aðila.
Lífsgæði þróunarfélag ehf. greiðir öll gjöld á framkvæmdartíma.
Bæjarráð samþykkir úthlutun á þróunarreit og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarstjóra jafnframt falið að ganga frá nánara samkomulagi við Lífsgæði þróunarfélag ehf.

Framsókn fagnar þessum mikilvæga áfanga og þeirri jákvæðu uppbyggingu sem hér er verið að skapa fyrir mikilvægan hóp í samfélaginu. Framsókn hefur stutt málið frá upphafi og lagt áherslu á að það verði að veruleika. Nú skiptir máli að fylgja því áfram eftir af festu og tryggja að framkvæmdin verði eins metnaðarfull og fyrirætlanir gera ráð fyrir. Hér er um fyrirmyndarverkefni að ræða sem Hafnarfjörður getur verið stoltur af og mun verða öðrum sveitarfélögum fyrirmynd á landsvísu. Framsókn mun áfram standa þétt við bakið á verkefninu og fylgja því eftir.

260818-Vatnshlid-lifsgaedareitur þróunarreitur.pdf
8. 2601432 - Reykjavíkurvegur 78 og 80, endurnýjun lóðarleigusamnnings
Beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings
Samþykkt.
Reykjavíkurvegur 78, lóðarleigusamningur 2.1.2026 DRÖG.pdf
Reykjavíkurvegur 80, lóðarleigusamningur 2.1.2026 DRÖG.pdf
9. 2603607 - Suðurholt 2b, umsókn um lóð
Míla hf. sækir um lóðina nr. 2b við Suðurholt
Bæjarráð tekur undir fyrirliggjandi umsögn og leggur til að stofnuð verði lóð undir mastrið við Suðurholt 2a. Lágmarksstærð lóðar er 8x8m.
Suðurholt 2b, umsögn skipulags, ný tillaga mars 2026.pdf
Suðurholt 2, umsögn skipulags jan. 2026.pdf
Greinagerð mars 2026 - Suðurholt 2 - Ný innviðalóð.pdf
10. 2608010 - Staðarhvammur 3-9, lóðarstækkun
Lögð fram beiðni um lóðarstækkun. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Fundargerðir
11. 2608008F - Hafnarstjórn - 1706
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 17.ágúst sl.
12. 2606014F - Menningar- og ferðamálanefnd - 476
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 12. ágúst sl.
Bæjarráð tekur undir bókun menningar- og ferðamálanefndar um nýtt húsnæði bókasafns Hafnarfjarðar og fagnar opnun nýs og glæsilegs bókasafns í Firði. Einnig þakkar bæjarráð starfsfólki safnsins fyrir öflugt og gott starf við flutning safnins í nýtt húsnæði í Firði. Hafnfirðingar eru hvattir til þess að heimsækja bókasafnið og nýta sér þjónustu þess.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:35 

Til bakaPrenta