Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 858

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
25.11.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Karólína Helga Símonardóttir formaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varaformaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Stefán Már Víðisson aðalmaður,
Böðvar Ingi Guðbjartsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíadóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Axel R. Överby skipulags- og byggingarfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir, Anne Steinbrenner, Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjórar skipulags og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
Lögð fram viðbrögð HMS við aðalskipulagi Hafnarfjarðar.
Skipulagsráðgjafa falið að bregðast við ábendingum HMS.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
2. 2601564 - Reykjanesfólkvangur, endurskoðun friðlýsingar
Kynnt staða vinnu við endurskoðun friðlýsingar.
Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.
3. 2601512 - Flensborgarhöfn, deiliskipulag
Tekið til umræðu.
Skipulags- og byggingaráð felur sviðinu að hefja undirbúning vegna landfyllingar á Flensborgarhafnarsvæði.
Landfylling stærðir.pdf
4. 2610200 - Áshamar 50, breyting á deiliskipulagi
Tekið fyrir að nýju erindi Ernu Þráinsdóttur f.h. lóðarhafa. Óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 40 í 46. Verslunarrými á 1. hæð verða íbúðir fyrir utan eitt rými.
Fulltrúar Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Miðflokksins taka undir mikilvægi þess að uppbygging í Áshamri þróist í takt við þarfir íbúa og að horft sé til heildarhagsmuna hverfisins við ákvarðanir um þéttingu byggðar.

Í vor var tekið jákvætt í að fjölga íbúðum á lóðinni úr 40 í 42. Sú afstaða stendur áfram. Hins vegar telja fulltrúarnir ekki tímabært að samþykkja frekari fjölgun íbúða í 46, eins og nú er óskað eftir.

Þjónustu- og atvinnurými á jarðhæðum gegna mikilvægu hlutverki við að skapa lifandi hverfi og tryggja íbúum aðgang að daglegri þjónustu í göngufæri. Því telur meirihlutinn mikilvægt að viðhalda þeim atvinnurýmum sem gert hefur verið ráð fyrir og tryggja að það nýtist áfram undir starfsemi og þjónustu fyrir íbúa hverfisins.

Þá er ítrekað að í skipulagi hverfisins hefur verið gert ráð fyrir þjónustu á þessu svæði og á sínum tíma lagði lóðarhafi fram viljayfirlýsingu með umsókn sinni um uppbyggingu tiltekinnar starfsemi.

Fulltrúi Framsóknar bókar:
Fulltrúi Framsóknar tekur jákvætt í fyrirliggjandi erindi um að breyta atvinnurými í íbúðir enda hefur húsnæðið staðið autt um langt skeið. Mikilvægt er að skipulag taki mið af raunverulegri eftirspurn og þörfum samfélagsins.Samtök iðnaðarins hafa bent á mikilvægi aukins sveigjanleika í þessum efnum og Reykjavíkurborg hefur nýverið stigið skref í sömu átt með því að draga úr kröfum um verslunar- og þjónusturými á jarðhæðum. Það þjónar hvorki hagsmunum bæjarins né samfélagsins að húsnæði standi ónotað árum saman þegar mögulegt er að nýta það með öðrum hætti.
5. 2605610 - Cuxhavengata 1, stjórnsýslukæra nr. UUA2605003
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 2605003.
Lagt fram.
UUA2605003 Suðurhöfn.pdf
6. 2608087 - Hringbraut 54a, stjórnsýslukæra UUA2607017
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 2607017.
Lagt fram.
2607017 Hringbraut 54, úrskurður.pdf
7. 2609081 - Ásbúðartröð 17, stjórnsýslukæra nr. UUA2608012
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 2608012.
Lagt fram.
2608012 Ásbúðartröð úrskurður.pdf
Fyrirspurnir
8. 2611443 - Krýsuvík, rannsóknarborholur Krý-03, fyrirspurn
HS Orka óskar eftir því að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna afmörkunar svæðis, aðkomu, umhverfisáhrif, skipulagsákvæði og samræmi við stefnu nýs aðalskipulags um Krýsuvík. Jafnframt óskar HS Orka eftir heimild til að vinna deiliskipulag fyrir borteig KRÝ-03.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna breytinga á landnotkun í Krýsuvík og vísar beiðni um breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar til staðfestingar í bæjarstjórn. Skipulags- og byggingarráð tekur jafnframt jákvætt í beiðni HS Orku um að hefja vinnu við deiliskipulag fyrir borteig KRÝ-03.
20261117 HSO Bréf til HAF-KRÝ-03.pdf
9. 2610291 - Skipulags- og byggingarráð tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa 2026-2030
Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins.
Fyrirspurn vegna Glimmerskarðs 2-6

1. Hefur verið sótt um byggingarleyfi, það gefið út eða tilkynning borist vegna framkvæmda að Glimmerskarði 2-6? Ef svo er, hvað felst í framkvæmdunum?

2. Hversu margar íbúðir eru heimilar samkvæmt gildandi deiliskipulagi og samþykktum aðaluppdráttum? Hefur verið óskað eftir fjölgun íbúða eða skiptingu húsanna í fleiri einingar?

3. Hefur byggingarfulltrúi metið hvort fyrirhuguð starfsemi ríkisins samræmist gildandi deiliskipulagi og samþykktri notkun húsnæðisins eða feli í sér breytta notkun sem krefst byggingarleyfis?

4. Hvaða kröfur gerir gildandi deiliskipulag um fjölda bílastæða á lóðinni og hversu mörg eru samþykkt?
Lagt fram.
Fundargerðir
10. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir
Lögð fram fundargerð svæðisskipulagsnefndar nr. 150.
Svæðisskipulagsnefnd - 150.pdf
11. 2611004F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 959
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=wRHEicf6cEqr2pvb1LgyjA1
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:27 

Til bakaPrenta