| |
| 1. 2607193 - Hlíðarbraut 2, breyting á deiliskipulagi | | ARK Design ehf. f.h. lóðarhafa sækir 16.07.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér stækkun á húsi til vesturs um 35,8 fm. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir. | | |
|
| 2. 2607194 - Óseyrarbraut 12b, breyting á deiliskipulagi | | Kristján Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 16.07.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að skipta lóðinni Óseyrarbraut 12B í tvær lóðir, 12B og 12C. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Óseyrarbraut 12B reitur 4.2, breytt deiliskipulag í grennd.pdf | | |
|
| 3. 2605336 - Hvaleyrarbraut 32, breyting á deiliskipulagi | | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10.06.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hvaleyrarbraut 32. Breytingin felst í að lóðin er stækkuð um 16,7 m til vesturs og byggingarreitur er stækkaður um 28 m til vesturs. Tilefni fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar er að skapa heimild fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði sem ætlað er að hýsa geymslu og flugeldasölu björgunarsveitarinnar. Tillagan var grenndarkynnt frá 16.06.2026 til 16.07.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 4. 2606133 - Víkingastræti 1h, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10.06.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Víkingastræti 1h. Breytingin felst í nýrri lóð fyrir dreifistöð HS Veitna við lóðarmörk Suðurgötu 18 í landi bæjarins. Aðkoma að lóð er um Víkingastræti. Stærð lóðar er 5 x 6 m og stærð byggingarreits er 3 x 4 m. Tillagan var grenndarkynnt frá 16.06.2026 til 16.07.2026. Engar athugasemdir bárust en ábending barst frá Veitum um að hitaveitulögn liggur í gegnum lóðina. Gera þarf ráð fyrir færslu lagna vegna fyrirhugaðra framkvæmda og sækja um hana í tæka tíð. Einnig vilja Veitur benda á að kostnaður vegna færslu eða annarra breytinga á veitukerfum fellur á aðilann sem óskar eftir breytingunni. Veitur leggja jafnframt áherslu á gott samráð á öllum stigum skipulags- og framkvæmda. | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Bent er á að hafa þarf samráð við Veitur tengt framkvæmdinni. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 5. 2607215 - Hellubraut 9, breyting á deiliskipulagi | | Sigríður Arngrímsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 20.07.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Óskað er eftir að rífa núverandi hús og reisa nýtt hús. Ný bygging verður 1. hæð ásamt kjallara sem verður að hluta til niðurgrafinn. | | Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs þegar samþykki allra eigenda liggur fyrir. | | |
|