Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 117

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
19.08.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2607313 - Hellisgata 13 og 15, breyting á deiliskipulagi
Einar Ingi Reynisson sækir þann 31.07.2026 um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hellisgötu 13 og 15. Breytingin felur í sér að fallið er frá skilmálum um viðbyggingu við núverandi íbúðarhús að Hellisgötu 13 til að varðveita upprunalega formgerð þess. Í staðinn er skilgreindur nýr, stakstæður byggingarreitur fyrir vinnustofu á einni hæð með risi á norðanverðri lóðinni fyrir sambærilega byggingarheimild. Grunnflötur byggingarinnar verður allt að 25 fm að meðtöldum hleðsluveggjum. Með breytingunni er nýtingarhlutfall lóðarinnar aukið úr 0,25 í 0,34.
Fallið er frá byggingarreit á framlóð að Hellisgötu 15. Heimilað byggingarmagn, samtals 50 fm, er fært að núverandi byggingu og nýtt til viðbygginga í norðvesturhluta hennar. Nýtingarhlutfall helst óbreytt.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Hellisgata 13-15, deiliskipulagsbreyting, í grennd.pdf
Hellisgata 13-15, skuggavarp, í grennd.pdf
2. 2608210 - Hraunbrún 28, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Um er að ræða leiðréttingu á uppdrætti vegna ósamræmis á milli uppdráttar og skilmálatöflu.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Hraunbrún 28, deiliskipulagsbreyting, í grennd.pdf
3. 2607186 - Breiðhella 14, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 15.07.2026 var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi vegna Breiðhellu 14.
Tillaga gerir ráð fyrir að annarri innkeyrslu er bætt við vestan megin á lóðinni. Tillaga var grenndarkynnt frá 20.07.2026 til 18.08.2026. Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta