Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 106

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
18.06.2026 og hófst hann kl. 09:30
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi,
Katrín Heiðar aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Anna Margrét Tómasdóttir starfsmaður,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Hildur Bjarnadóttir, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2606006 - Tinnuskarð 24, breyting
Páll Poulsen f.h. lóðarhafa sækir 01.06.2026 um breytingar á þegar samþykktum teikningum. Fjölgun eigna um eina ásamt ýmsum öðrum breytingum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Eigandi þarf að leggja inn nýja eignaskiptayfirlýsingu.

2. 2601062 - Straumhella 1-3, byggingarleyfi
Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa sækir 06.01.2026 um að byggja stálgrindarhús fyrir lagerhúsnæði ásamt skrifstofuhluta.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2605427 - Selhella 7, MHL.02, breyting
Gunnlaugur Jónasson f.h. lóðarhafa sækir 21.05.2026 um að stækka vörusal til norðurs um 10,5 metra.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
F-hluti önnur mál
4. 2606403 - Skútahraun, óleyfisframkvæmd dagsektir
Sett hefur verið hlið á lóð Skútahrauns 2 sem er í ósamræmi við kvaðir á lóðinni og hindrar umferð að kjallara Drangahrauns 3 og 5. Eigendum hliðsins hefur verið gert að opna hliðið eða veita eigendum Drangahrauns aðgang að hliðinu. Ekki hefur verið brugðist við.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir 20.000 kr. pr. dag, á lóðarhafa Skútahrauns 2, frá og með 2.07.2026 skv. heimild 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta