| |
| 1. 2507281 - Selvogsgata 17, reyndarteikningar | | Gunnar Logi Gunnarsson f.h. lóðarhafa sækir 22.07.2025 um breytingu á áður samþykktu máli. Hæð í kjallara hærri (reyndarteikning), eldvarnarveggur tekinn út. | | Byggingaráform samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| |
| 2. 2306697 - Fagrakinn 4, fyrirspurn | | Lögð fram fyrirspurn eiganda Fögrukinnar 4, íbúð 0101, vegna framkvæmda eiganda íbúðar 0201 á sameiginlegri lóð. | | Lóð er sameign allra eigenda og samþykki allra eigenda þarf fyrir framkvæmdum innan lóðar. Þær framkvæmdir sem gerðar voru í óleyfi hafa verið fjarlægðar. Bílskúrsréttur er á lóðinni skv. eignaskiptayfirlýsingu og er hann í eigu eignar 0201. Ekki hefur verið reistur bílskúr á lóðinni en smáhýsi hefur verið reist á bílskúrsréttinum. Byggingarfulltrúi mun ekki aðhafast vegna þessa. | | |
|
| |
| 3. 2512709 - Thorsplan, stöðuleyfi, matarvagn | | Yalla Habibi ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn á Thorsplani frá 1.2.2026 til 30.9.2026. | | Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa heimilar ekki útgáfu stöðuleyfis á Thorsplani. Útlit og stærð matarvagnsins fer ekki vel á þessum stað í bæjarlandinu. | | |
|