| |
| 1. 2508535 - Hafnarreglugerð - afmörkun hafnarsvæðis | | Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneyti dags 8. júlí sl. um að gefin hefur verið út og auglýst í Stjórnartíðindum mál 781/2026 - Hafnarreglugerð um breytingu á hafnarreglugerð nr. 423/2012 fyrir Hafnarfjarðarhöfn. | | Tilkynning um breytingu á hafnarreglugerð júní 2026.pdf | | Breyting á hafnarrreglugerð gefin út júní 2026.pdf | | |
|
| 2. 2606255 - Umsókn um styrk vegna björgunarskips | | Lagt fram að nýju erindi frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar dags 8. júní 2026 þar sem leitað er eftir styrk frá hafnarsjóði til að ljúka smíði nýs björgunarskips sveitarinnar. | | Hafnarstjórn samþykkir að veita Björgunarsveit Hafnarfjarðar styrk að fjárhæð 10 milljónir til smíði nýja björgunarskipsins. | | Styrktarbeiðni v. björgunarskips júní 2026.pdf | | |
|
| |
| 3. 2601111 - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign | | Lagt fram til kynningar samþykkt deiliskipulag fyrir nýja lóð Vitastígur 12A - Vitinn við Vitastíg. | | |
|
| 4. 2511136 - Farþegaskip 2026 - aðstaða á Suðurbakka | | Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt þjónustuhús fyrir farþegaskip á Suðurbakka. | | Suðurbakki-Þjónustuhús skemmtiferðaskipa reitur 4.1 - Breytt deiliskipulag 2026.07.22.pdf | | Suðurbakki- Þjónustuhús - Bréf hönnuðar 2026.07.22.pdf | | |
|
| 5. 1407063 - Norðurgarður og Norðurbakki - endurbygging | | Farið yfir stöðu lokaframkvæmda við endurgerð Norðurgarðsins. | | |
|
| 6. 2606261 - Fjárhags- og rekstraráætlun 2026 | Hafnarstjóri fór yfir stöðu rekstrar hafnarinnar fyrir 7 fyrstu mánuði ársins. Þórður Hugo Björnsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurnir: Fyrirsprun I Óskað er eftir skriflegu svari um á grundvelli hvaða ákvörðunar, samnings, reglu, umboðs eða annarrar heimildar sú staða er til komin að Hafnarfjarðarhöfn (hafnarsjóður) eigi kröfu á Hafnarfjarðarbæ að fjárhæð 1.181.587.951 kr. þann 31. desember 2025, sbr. liðinn „Kröfur á tengda aðila“ og skýringu 16 í ársreikningi Hafnarfjarðarhafnar 2025. Óskast tilgreint hver tók ákvörðun um fyrirkomulagið, hvenær hún var tekin og hvar hún er skráð. Sé um ákvörðun hafnarstjórnar að ræða óskast vísað til fundar og dagsetningar. Sé ákvörðunin tekin á öðrum grundvelli óskast sá grundvöllur og sá aðili sem tók ákvörðunina tilgreindur. Fyrirspurn II Óskað er eftir afriti af öllum samningum, samkomulögum, ákvörðunum, reglum, umboðum eða öðrum skjölum sem gilda um þessa kröfu eða það fyrirkomulag sem hún byggist á og ákvarða réttindi og skyldur aðila. Þar á meðal óskast upplýsingar um vexti eða önnur kjör, gjalddaga eða endurgreiðslufyrirkomulag, uppgreiðsluskilmála og hvort tryggingar, veð eða ábyrgðir standi að baki. Sé ekkert slíkt skjal til óskast það staðfest skriflega.
Fyrirspurn III Óska eftir skýringu á liði Lángtímaskuldir ársreikningur 2025
| | |
|