Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 840

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
08.01.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður,
Guðrún Lísa Sigurðardóttir aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Sigurjón Ingvason áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Anne Steinbrenner verkefnastjórar, Ívar Bragason og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
Tekið til umræðu. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar fyrir kynninguna.
2. 2511390 - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi
Helgi Már Hallgrímsson fh. lóðarhafa leggur inn tillögu að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, aukningu nhl., hámarkshæð verði 16m, kvöð um lagnir í jörð á lóðinni aflögð, þakform verði frjálst hækkun á gólfkóta.
Að öðru leyti gilda eldri skilmálar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26 og vísar erindinu til staðfestingar í hafnarstjórn.
25033 deiliskipulag Óseyrarbraut 26, breyting.pdf
3. 2402431 - Tjarnarvellir 1, breyting á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 24. september 2025 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Valla miðsvæðis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Breytingin felst í að á Tjarnarvöllum 1 er fallið frá því að bílakjallari nái út fyrir lóðina og uppskipting hæða breytist. Tillagan var í auglýsingu 2.10-27.11.2025. Lögð fram samantekt athugasemda og svör ásamt uppfærðri tillögu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsdeildar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Tjarnarvalla 1 og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
Tjarnarvellir 1, samantekt athugasemda og svör.pdf
DSK_VELLIR. MIDSVÆDI breyting 09.09.25B.pdf
4. 2510628 - Hjallabraut 45-49C, breyting á deiliskipulagi
Bjarni Snæbjörnsson f.h. lóðarhafa sækir 31.10.2025 um breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir að aðkomu að svæði verði breytt. Ný aðkoma inn að íbúðarsvæði beint frá Hjallabraut frá suðri. Aðkomu að íbúðarsvæði lokað frá bílastæðum skátaheimilis. Gestastæðum bætt við. Ekki er lengur gert ráð fyrir djúpgámum, heldur er gert ráð fyrir sorptunnum við hvert hús.
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 17.12.2025 var erindinu vísað til skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hjallabrautar 45-19c og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Hjallabraut 45-49C, deiliskipulagsbreyting.pdf
5. 2510041 - Setberg, deiliskipulag grenndargámastöð
Framkvæmda- og rekstrardeild Hafnarfjarðar leggur 02.10.2025 fram tillögu að svæði við Staðarberg til að setja niður grenndargáma í Setbergi.
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12.11.2025 var samþykkt að grenndarkynna erindið með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt athugasemda og svör ásamt uppfærðri tillögu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsdeildar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Setbergs vegna grenndarstöðvar við Staðarberg og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
Grenndargámar við Staðarberg, umsögn.pdf
breyting deilis Staðarberg- gámar fluttir norðar-060126.pdf
6. 2412244 - Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040
Lögð fram umsögn Hafnarfjarðarbæjar vegna tillögu að endurskoðun svæðisskipulags Suðurnesja 2024-2040.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn sviðsins.
Umsögn Hfj. vegna svæðisskipulags Suðurnesja 2.pdf
Fyrirspurnir
7. 2511567 - Áshamar 50, fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa þann 3.12 sl. vísaði fyrirspurn Sigurbjargar H Gunnbjörnsdóttur fh. lóðarhafa vegna fjölgunar íbúða á jarðhæð til skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið.
8. 2512059 - Hringhamar 43, fyrirspurn
Gunnar Thoroddsen f.h. Hjúkrunarheimilið Hamranesi ehf leggur 2.12.2025 fram fyrirspurn varðandi fyrirhugaðar breytingar, stefnt er að því að 11 hjúkrunarrými verði staðsett á 1. hæð hússins í stað dagdeildar. Óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til breytinga á aðal- og deiliskipulagi þannig að heimilt verði að byggja 99 þjónustueiningar/hjúkrunarrými á lóðinni við Hringhamar 43 í stað 96. Lögð fram umsögn skipulagsdeildar.
Erindi frestað.
Fundargerðir
9. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir
Lögð fram fundargerð 142. fundar.
Svæðisskipulagsnefnd - 142.pdf
10. 2512014F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 86
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=z2fLnpz3BkeB5V1UGJ9r3g1
11. 2512017F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 87
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=oogZn5xdx0G2qSFk7tk4Q1
12. 2512012F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 91
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=2MECSDtZiECuEwZBrUKP0A1
13. 2512018F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 92
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=01aIPzlyOUan1QRPqvEWrQ1
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:34 

Til bakaPrenta