Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1972

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
11.03.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Valdimar Víðisson bæjarstjóri,
Kristinn Andersen forseti,
Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2503590 - Ungmennaráð, tillögur 2026
1. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sett verði á fót markviss og samræmd fræðsla um svefn og næringu fyrir öll ungmenni í Hafnarfirði, með það að markmiði að bæta líðan og styðja við heilbrigðan lífsstíl.

2. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að öllum nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum bæjarins verði tryggður aðgangur að fartölvum til reglubundinnar notkunar í námi.

3. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til tillögu um mótun gervigreindarstefnu fyrir skólastarf í Hafnarfirði.

4. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að grunnskólar í bænum samræmi upphaf skóladags og færi hann til seinna á morgnanna, með það að markmiði að bæta líðan, heilsu og námsárangur nemenda.

5. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að grunnskólar í bænum leggi aukna áherslu á verklegt nám í kennslu, með það að markmiði að efla fjölbreytileika náms.

6. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að dregið verði úr skólasundi í grunnskólum og að sundkennsla verði kynjaskipt.

7. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sett verði á fót samræmd fræðsla um geðheilsu fyrir öll ungmenni í bænum með áherslu á forvarnir..

8. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að viðbragðsáætlanir gegn einelti í grunnskólum bæjarins verði endurskoðaðar og samræmdar til að tryggja skýr og árangursrík úrræði fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði.

9. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að nemendum verði tryggður formlegur atkvæðaréttur í ákvörðunum sem varða skólalíf, til að efla lýðræðislega þátttöku ungmenna.

10. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að fjárveitingar til grunnskóla verði auknar til að bæta aðstöðu og búnað fyrir nemendur.

11. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að námsefni og námskrárvinnu grunnskólanna verði samræmd í ríkari mæli til að tryggja jafnræði nemenda.

Kristín Thoroddsen tekur til máls. Einnig Valdimar Víðisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Stefán Már Gunnlaugsson og Jón Ingi Hákonarson.

Forseti ber næst upp fyrirliggjandi tillögur og að þeim verði vísað til fræðsluráðs. Er það samþykkt samhljóða.

Kristín kemur að svohljóðandi bókun:

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn fagna því góða og metnaðarfulla starfi sem Ungmennaráð Hafnarfjarðar hefur unnið og þeim fjölbreyttu tillögum sem ráðið leggur fram í dag. Tillögurnar sýna skýra sýn ungmenna á hvernig megi bæta bæði líðan og námsumhverfi þeirra. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá áherslu á heilsu og velferð ungmenna, meðal annars með fræðslu um svefn, næringu og geðheilsu, auk tillagna um þróun skólastarfs eins og gervigreindarstefnu, aukið verklegt nám og bætta aðstöðu í skólum.

Starf Ungmennaráðsins sýnir vel hversu mikilvægt er að hlusta á rödd ungmenna þegar kemur að menntamálum og öðrum málum sem tengjast ungu fólki.


2. 2205659 - Ráð og nefndir 2022 - 2026, kosningar
Breyting í ráði og nefndum.

Forsetanefnd.
Valdimar Víðisson, Brekkuási 7, tekur sæti Framsóknar í forsetanefnd í stað Margrétar Völu Marteinsdóttur.

Skipulags- og byggingaráð:
Varamaður í stað Steinunnar Guðmundsdóttur verður Hrund Biering Valsdóttir, Staðarhvammi 19.
Samþykkt samhljóða.
3. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 5.mars sl.
Lagðir fram viðaukar 1 og 2. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Valdimar Víðisson tekur til máls.

Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Einig Árni Rúnar Þorvaldsson.

Samþykkt samhljóða.
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin.pdf
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin.pdf
4. 2502467 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting borhola Krýsuvík
3. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5. mars sl.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 8. október 2025 var samþykkt samhljóða að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 og nýtt deiliskipulag vegna rannsóknarborunar í Krýsuvík. Tillögurnar voru í kynningu 9.1.-20.2.2026. Samantekt athugasemda og svör lögð fram. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsráðgjafa og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og tillögu um nýtt deiliskipulag vegna rannsóknarborunar í Krýsuvík.
Skipulags- og byggingarráð leggur auk þess til að hlutaðeigandi sveitarfélög taki upp viðræður og eyði óvissu sem ríkir um sveitarfélagamörkin í Krýsuvík.
Orri Björnsson tekur til máls. Guðmundur Árni Stefánsson kemur til andsvars.

Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls undir fundarstjórn forseta.

Forseti leggur næst til að fyrirliggjandi tillögur verði bornar upp til atkvæða hvort fyrir sig.

Forseti ber næst upp til samþykktar fyrirliggjandi tillögu að breytingum á aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Er það samþykkt samhljóða.


Forseti ber næst upp til samþykktar fyrirliggjandi tillögu að breytingum á deiliskipulagi. Er það einnig samþykkt samhljóða.

DSK Krýsuvík_samantekt umsagna.pdf
Aðalskipulagsbreyting_Krýsuvík-I12.pdf
Deiliskipulag í Krýsuvík-I12.pdf
Dsk slóð á skipulagsgátt.pdf
ASK Krýsuvík_samantekt umsagna.pdf
Skipulagsráð_260305.pdf
Ask slóð á Skipulagsgátt.pdf
5. 2602613 - Ásvallalaug breyting á deilikipulagi
6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.mars sl
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásvallalaugar. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreit til suðvesturs. Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásvallalaugar vegna stækkunar á byggingarreit og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Orri Björnsson tekur til máls. Einnig Stefán Már Gunnlaugsson.

Samþykkt samhljóða.
2504 - Ásvallalaug - Deiliskipulagsbreyting.pdf
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 476 (3.10.2025) - Ásvallalaug, útisvæði.pdf
2504 - Forhönnun - Kynning.pdf
6. 2603105 - Verkalýðsfélagið Hlíf, persónuuppbætur tímavinnufólks, dómsmál
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna niðurstöðu bæjarráðs um að greiða starfsfólki, sem hefur starfað á tímavinnusamningum hjá bænum, ógreiddar persónuuppbætur í samræmi við dóm Héraðsdóms Reykjaness sem frá því í júní síðastliðnum. Í nóvember árið 2024 stefndi Verkalýðsfélagið Hlíf Hafnarfjarðarbæ vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanns sem hafði verið ráðinn í tímavinnu og starfaði samkvæmt ráðningarsamningi frá 20. september 2019 þar til í júlí 2024. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í júní síðastliðnum og þar var bænum gert að greiða viðkomandi starfsmanni persónuuppbætur aftur í tímann, auk málskostnaðar. En frá því dómurinn féll fyrir níu mánuðum hefur afstaða bæjarins verið sú að dómurinn væri rangur og að bærinn hefði ákveðið að fara ekki að dómnum varðandi annað starfsfólk í sömu stöðu. Á þessum níu mánuðum var niðurstaða héraðsdóms aldrei kynnt eða rædd í bæjarráði og það var ekki fyrr en Verkalýðsfélagið Hlíf vakti athygli á þessari afstöðu Hafnarfjarðar opinberlega 27. febrúar síðastliðinn að eitthvað gerðist og fulltrúar Samfylkingarinnar óskuðu eftir málinu á dagskrá bæjarráðs. Í kjölfar umræðna var það svo samþykkt samhljóða í bæjarráði að dómurinn hefði fordæmisgildi gagnvart öðru starfsfólki í sömu stöðu og fól sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá uppgjöri við við viðkomandi starfsmenn. Það er vissulega hægt er að fagna sinnaskiptum meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í málinu þó það sé auðvitað fullkomlega óeðlilegt að meirihlutinn hafi í heila níu mánuði sagt að bærinn teldi dóminn rangan og ætlaði því ekki að fara að dómnum varðandi annað starfsfólk í sömu stöðu. Meirihlutinn ætlaði þannig að humma málið fram af sér þar til Verkalýðsfélagið Hlíf vakti athygli á afstöðu bæjarins opinberlega og þegar jafnaðarmenn óskuðu eftir málinu á dagskrá bæjarráðs í kjölfarið.

Valdimar Víðisson tekur til máls. Guðmundur Árni Stefánsson kemur til andsvars. Valdimar svarar andsvari. Guðmundur Árni kemur að andsvari öðru sinni. Árni Rúnar kemur að andsvari. Valdimar kemur að andsvari. Orri Björnsson kemur til andsvars.

Guðmundur Árni tekur til máls undir fundarstjórn forseta.

Guðmundur Árni tekur til máls. Valdimar kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari. Valdimar kemur til andsvars öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar.

Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni.

Valdimar kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar meirihluta koma að eftirfarandi bókun: Málið kom inn á borð bæjarfulltrúa í bæjarráði þann 5.mars sl. Á þeim fundi var tillaga meirihluta lögð fram. Tillagan gerði ráð fyrir að bæjarráð samþykkti að dómurinn hafi fordæmisgildi gagnvart öðrum starfsmönnum í sömu stöðu og dómurinn kvað á um. Bæjarráð samþykkti tillöguna samhljóða. Fulltrúar Samfylkingar hafa þakkað sér sérstaklega fyrir að málið hafi verið klárað en hið rétta er að tillaga um þessa afgreiðslu kom frá meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.
7. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og leggja fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að frá 1.júní næstkomandi verði endurgjaldslaust í Strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs. Kostnaður er á yfirstandandi ári um 28 milljónir króna. Breytingar verði gerðar á gildandi fjárhagsáætlun til að fjármagna þessa réttarbót og það gert með aðhaldi og sparnaði; með sérstakri sjálfstæðri tillögu, þar sem samþykkt verður að lækka kostnað við aðkeypta þjónustu um 30 milljónir.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls.

Kristín Thoroddsen tekur til máls og leggur til að fyrirliggjandi tillögu verði vísað frá. Guðmundur Árni Stefánsson kemur að andsvari. Kristín svarar andsvari. Guðmundur Árni kemur að andsvari öðru sinni.

Árni Rúnar Þorvaldson tekur til máls.

Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.

Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni.

Forseti ber næst upp til atkvæða framkomna tillögu um að vísa málinu frá og er hún samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með frávísun málsins. Fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn frávísun málsins og fulltrúi Viðreisnar situr hjá.

Hildur Rós kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á því að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skuli enn og aftur ekki samþykkja tillögu Samfylkingarinnar um að frítt verði í strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs. Nú er liðinn rúmur mánuður síðan bæjarráð samþykkti að að vísa tillögu jafnaðarfólks til bæjarstjórnar. Á meðan hafa bæði Ungmennaráð og Foreldraráð Hafnarfjarðar bókað um málið í fræðsluráði. Á fundi fræðsluráðs þann 18. febrúar sl. fagnaði Ungmennaráð Hafnarfjarðar fyrirliggjandi tillögu og áréttaði að aðgangur að strætó geti skipt sköpum fyrir fjölskyldur með takmarkað fjármagn, eflt sjálfstæði ungmenna og tryggt að öll ungmenni hafi jafnt aðgengi að skóla- og tómstundastarfi. Á síðasta fundi fræðsluráðs lýsti svo Foreldraráð Hafnarfjarðar yfir eindregnum stuðningi við þá meginhugmynd að hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs fái gjaldfrjálsan aðgang að Strætó og telur mikilvægt að nú verði skrefið stigið til fullrar framkvæmdar. Í ljósi þess voru vonir bundnar við að að meirihlutinn myndi samþykkja tillöguna í bæjarstjórn en í ljós hefur komið að einungis var um tafaleik á ræða hjá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Síðan hefur meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks verið á harðahlaupum frá málinu og með stuðningi bæjarfulltrúa Viðreisnar sent það til úrvinnslu utan bæjarstjórnar eða til stjórnar Strætó bs. og hins nýstofnaða félags um almenningssamgöngur, auk þess að vísa henni til umfjöllunar hjá SSH. Stuðningur núverandi bæjarfulltrúa Viðreisnar við tafa- og biðleiki meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vakti furðu þar sem hann hefur samþykkt sambærilega tillögu Samfylkingarinnar við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á þessu kjörtímabili. Hins vegar virðist ný forysta Viðreisnar styðja málið heilshugar og m.a. ánægjulegt að lesa bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar í fræðsluráði um að hætta ætti að flækja augljóst réttlætismál með biðleikum og hvatti til þess að gengið yrði hreint til verks. Fyrirliggjandi er að umfjöllun þessara aðila utan Hafnarfjarðar hefur ekki bætt neinu við málið, enda snýst tillagan að afstöðu bæjarfulltrúa í Hafnarfirði og þeirri afstöðu verður ekki útvistað.
Víðtækur og breiður stuðningur er því augljóslega til staðar við fyrirliggjandi tillögu Samfylkingarinnar og allar nauðsynlegar upplýsingar til að taka ákvörðun í málinu liggja fyrir. Það er því ekki eftir neinu að bíða en eina sem skortir er pólitískur vilji hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki og bæjarfulltrúa Viðreisnar. Samfylkingin mun halda áfram að berjast fyrir þessu hagsmunamáli í þágu hafnfirskra ungmenna og fjölskyldna þeirra og ef núverandi meirihluti hefur ekki bolmagn til þess að ljúka því þá mun Samfylkingin einfaldlega koma því í höfn í nýjum meirihluta strax að loknum kosningum í vor.

Kristín kemur að svohljóðandi bókun:

Sjálfstæðisflokkur og Framsókn leggja áherslu á að hér úr þessum ræðustól hafa fulltrúar meirihlutans lýst yfir vilja til að skoða leiðir til að veita ungu fólki frían aðgang að Strætó. Slík ákvörðun gæti aukið notkun almenningssamgangna meðal ungmenna, dregið úr kostnaðarbyrði heimila og stuðlað að því að byggja upp langtímahegðun í átt að sjálfbærari samgöngum.
Meirihlutinn vill þó árétta að ákvörðun um gjaldfrjálsan aðgang að Strætó þarf að byggja á vandaðri greiningu í samvinnu við þá aðila sem koma að rekstri Strætó, líkt og áður hefur verið samþykkt og bókað í bæjarstjórn. Sú vinna er þegar hafin.
Fulltrúi meirihlutans í stjórn Strætó hefur lagt áherslu á að sérstaklega verði skoðað hvort og með hvaða hætti hægt sé að hrinda slíkri ákvörðun í framkvæmd, jafnvel þótt ekki öll þau sveitarfélög sem koma að rekstrinum, né ríkið, taki þátt í henni.
Jafnframt hefur fulltrúi Strætó úr meirihluta bæjarstjórnar lagt til að skoðað verði hvort Hafnarfjarðarbær geti tekið þátt í kostnaði miðað við raunverulega notkun ungmenna. Sú vinna er einnig í gangi.
Vilji meirihlutans er skýr í þessu máli og mun sjá til þess að greiningin verði unnin hratt og vel.






8. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og leggja fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:
Bæjarstjórn samþykkir að hefja undirbúning vegna uppbyggingar á lífsgæðaíbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu á grundvelli tillagna starfshóps um uppbyggingu á íbúðum fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Umhverfis- og skipulagssviði er falið að að undirbúa nauðsynlegar breytingar á skipulagi svæðisins og fjölskyldusviði samhliða gert að móta fyrirkomulag þjónustu og halda utan um verkefnið að öðru leyti, en hafa samráð við Öldungaráð og Félag eldri borgara í Hafnarfirði um málið. Undirbúningi verði lokið fyrir 1. maí næstkomandi og verði það síðan verkefni bæjarráðs að koma verkefninu af stað, þannig að úthlutun lóðar og síðan framkvæmdir megi hefjast síðar á yfirstandandi ári.

Greinargerð:
Á fundi bæjarstjórnar í desember 2023 lagði Samfylkingin til að settur yrði á fót starfshópur um uppbyggingu á íbúðum fyrir eldra fólk í Hafnarfirði. Tillögunni var vísað til bæjarráðs og eftir nokkra umræðu var tillagan loksins samþykkt í bæjarráði tæpu ári síðar, eða í október 2024 og bæjarráð skipaði starfshópinn í sama mánuði og setti honum erindisbréf. Það kvað á um að meginverkefni hópsins væri að móta tillögur varðandi uppbyggingu á íbúðum fyrir eldra fólk í Hafnarfirði, að leita leiða til að gera eldra fólki kleift að búa lengur í sjálfstæðri búsetu og skoða bestu leiðir við uppbyggingu húsnæði og þjónustu fyrir eldra fólk við skipulagningu nýrra byggingarsvæða. Hópurinn fjallaði talsvert um lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk og í stuttu máli má segja að um sé að ræða íbúðir sem samþætta öryggi, aðgengi, félagslega þátttöku og sjálfstæði og er ætlað að stuðla að sem bestu lífsgæðum á efri árum fólks.

Hópurinn skoðaði þörfina fyrir uppbyggingu á lífsgæðaíbúðum fyrir eldra fólk í Hafnarfirði. Í þeirri greiningu var litið til þess hvaða uppbygging hefur átt sér stað í Hafnarfirði á íbúðum sem byggðar voru sérstaklega með þarfir eldra fólks í huga. Í skýrslu starfshópsins kemur fram að árið 1989 voru byggðar 59 íbúðir á Hjallabraut 33 en íbúar bæjarins voru þá rétt rúmlega 14.500 talsins og 67 íbúðir voru byggðar á Sólvangsvegi 1-3 árið 1992 en íbúar bæjarins þá voru rétt rúmlega 16.000. í dag eru íbúar Hafnarfjarðar rúmlega 30 þúsund og jafnframt liggur fyrir að á næstu árum muni eldri borgurum fjölga. Það er því mat starfshópsins að uppbygging lífsgæðaíbúða sé brýnt hagsmunamál fyrir eldri íbúa í Hafnarfirði og bæjarfélagið í heild til framtíðar.

Í skýrslu sinni leggur starfshópurinn til uppbygging lífsgæðaíbúða á þremur reitum verði sett í forgang til þess að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Sá reitur sem er kallaður byggingarreitur 1 í skýrslunni er Álfaskeið 62 á Sólvangsreitnum. Þar er gott aðgengi að þjónustu í næsta nágrenni og stutt er í miðbæinn, græn svæði og almenningssamgöngur. Að mati starfshópsins býður þessi reitur upp á góða möguleika fyrir að minnsta kosti 48 lífsgæðaíbúðir fyrir eldri borgara í Hafnarfirði.

Það er því orðið mjög brýnt mál að hefja uppbyggingu á íbúðum sem sérstaklega eru hannaðar með þarfir eldra fólks í huga. Það var síðast gert í Hafnarfirði fyrir rúmum þrjátíu árum þegar íbúar í Hafnarfirði voru rétt rúmlega 16 þúsund. Af þeim sökum leggur Samfylkingin það til að hafinn verði undirbúningur að uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk í samræmi við tillögur fyrrnefnds starfshóps með það að markmiði að framkvæmdir geti hafist á árinu.
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.

Margrét Vala Marteinsdóttir tekur til máls og leggur til að fyrirliggjandi tillögu verði vísað frá. Stefán Már kemur að andsvari. Margrét Vala svarar andsvari. Stefán Már kemur að andsvari öðru sinni.

Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.

Jón Ingi Hákonarson tekur til máls. Orri Björnsson kemur til andsvars.

Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Forseti ber næst upp til atkvæða framkomna tillögu um að vísa málinu frá og er hún samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með frávísun málsins. Fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn frávísun málsins og fulltrúi Viðreisnar situr hjá.

Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa allt kjörtímabilið kallað eftir aðgerðum í þágu eldri borgara og þá ekki síst í húsnæðismálum og fyrirliggjandi tillaga byggir einmitt á vinnu starfshóps sem myndaður var að frumkvæði Samfylkingarinnar. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar og því bundu jafnaðarmenn vonir við að tillaga okkar um uppbyggingu á Sólvangssvæðinu myndi hljóta náð fyrir augum meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. En svo er ekki og við okkur blasir meirihluti sem leggur á flótta undan málinu. Og skyldi svo sem engan undra þar sem afstaða meirihlutans til tillögunnar opinberar áhuga- og aðgerðarleysi meirihlutans. Það er merkilegt í ljósi þess að á fyrsta fundi bæjarstjórnar á kjörtímabilinu lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks til að vinnu við uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk yrði hraðað og var Sólvangssvæðið sérstaklega nefnt í því sambandi. En síðan hefur nákvæmlega ekkert gerst af hálfu meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í þessu máli. Meirihlutinn hefur einfaldlega skilað auðu og svo bítur hann höfuðið af skömminni með því leggja til, á síðustu andartökum kjörtímabilsins, að láta vinna 10 ára uppbyggingaráætlun um lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk á grundvelli niðurstaðna starfshópsins. Uppbyggingaráætlun meirihlutans skal byggja á greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf, forgangsröðun byggingarreita, samspili við aðalskipulag og húsnæðisáætlun bæjarins og mögulegra samstarfs- og fjármögnunarleiða. Svo mörg voru þau orð og með þessari tillögu sinni á síðasta bæjarstjórnarfundi afhjúpaði meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eigin erindisleysu og uppgjöf hans er algjör. Samfylkingin mun halda málinu til streitu og ef núverandi meirihluti heykist áfram á því að vinna að þessari mikilvægu uppbyggingu þá mun Samfylkingin einfaldlega tryggja að byggðar verði lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk í nýjum meirihluta á næsta kjörtímabili.

Margrét Vala kemur að svohljóðandi bókun:

Í umræðu um uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk hefur borið á framsetningu frá fulltrúum Samfylkingarinnar sem byggir á augljósri einföldun og rangri mynd af afstöðu meirihlutans um málið. Slík framsetning er óheiðarleg og þjónar ekki málefnalegri umræðu um eitt mikilvægasta verkefni bæjarins á næstu árum.
Hér er um er að ræða sérstakt búsetuform sem byggir á aðgengi, öryggi, félagslegri þátttöku og sjálfstæði íbúa þar sem sameiginleg rými, góð tenging við þjónustu og aðgengilegt nærumhverfi eru lykilþættir. Markmiðið er að skapa aðstæður sem gerir eldra fólki kleift að búa lengur sjálfstætt og njóta virkrar þátttöku í samfélaginu.
Slík uppbygging krefst vandaðs undirbúnings, skýrrar stefnu og heildstæðrar sýnar til lengri tíma. Þess vegna er í niðurstöðum starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk lögð áhersla á að unnin verði heildstæð 10 ára uppbyggingaráætlun sem byggi á þarfagreiningu, forgangsröðun byggingarreita og samspili við skipulag bæjarins.
Málið er nú í vinnslu í bæjarráði þar sem unnið er að áframhaldandi vinnu starfshóps um uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk. Markmiðið er skýrt, að lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk rísi í Hafnarfirði á grundvelli vandaðs undirbúnings og ábyrgra vinnubragða


9. 2603201 - Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, staða bæjarfulltrúa
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Valdimar Víðisson kemur að andsvari. Guðmundur Árni svarar andsvari.

Orri Björnsson tekur til máls. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur að andsvari. Orri svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni sem Orri svarar.

Árni Rúnar tekur til máls. Orri kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari sem Orri svarar. Valdimar kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari. Valdimar kemur að andsvari öðru sinni.

Margrét Vala Marteinsdóttir tekur til máls. Guðmundur Árni kemur að andsvari.

Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls.

Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni og leggur fram svohljóðandi bókun:

Upplýst var á síðasta fundi bæjarráðs af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Margrét Vala Marteinsdóttir, sem kjörin var í bæjarstjórn af lista Framsóknarflokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum, muni sitja áfram í bæjarstjórn sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins út þetta kjörtímabil. Þetta væri niðurstaðan eftir að fyrrnefndur bæjarfulltrúi skipti um flokk, gekk úr Framsókn í Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar var það óljóst hvort hún myndi sitja áfram í bæjarráði og gegna formennsku í fjölskylduráði. En eftir bæjarstjórnarfund í dag er ljóst að hún mun áfram sitja í bæjarráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og gegna formennsku í fjölskylduráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn en víkur hins vegar sæti forsetanefnd.
Þessi uppákoma sýnir að gömlu valdaflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, eru svo samtvinnaðir að engu virðist skipta hvorum flokknum fulltrúar þeirra tilheyra. Sérstaka athygli vekur algjör uppgjöf Framsóknarflokksins og fullkominn veikleikamerki sem birtast í því að bæjarfulltrúi þeirra fer úr flokknum og í annan, en samt situr hann sem fastast í bæjarstjórn fyrir nýjan flokk og og áfram sem formaður fjölskylduráðs sem Sjálfstæðismaður. Og í raun áfram þar einnig í umboði þess flokks, sem hún gekk úr og hafnaði fyrir örfáum dögum síðan. Alveg sérstaka athygli vekur að umræddur bæjarfulltrúi heldur sæti sínu í bæjarráði. Það þýðir að Framsóknarflokkurinn á engan kjörinn fulltrúa í bæjarráði og lætur það yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust. Þessi uppákoma öll undirstrikar og staðfestir þann veruleika, að meirihlutinn er kominn á endastöð og heldur saman eingöngu að nafninu til. Og mun sennilega hökta undir þessum nýju formerkjum fram að kosningum eftir rúma tvo mánuði. En síðan ekki söguna meir.

Það skal á það minnt að bæjarfulltrúar eru kjörnir til setu í bæjarstjórn af framboðslistum viðkomandi stjórnmálaflokka miðað við kjörfylgi þeirra, en ekki kosnir sem einstaklingar. Kjörbréf sem kjörstjórnir senda bæjarfulltrúum að afloknum kosningum geta þess sérstaklega að þeir eru kosnir af lista viðkomandi flokks. Það er því stórt spurningamerki sem hver einstaklingur verður að gera upp við sjálfan sig, hvort það sé siðferðilega rétt að hann sitji sem fastast, enda þótt hann hafi farið úr þeim stjórnmálaflokki sem tryggði sæti hans í bæjarstjórninni við upphaf kjörtímabilsins. Þess skal getið að varamenn koma úr þeim flokki. Þannig að varafulltrúar Margrétar Völu Marteinsdóttur koma úr Framsóknarflokki, enda þótt hún hafi gengið úr þeim flokki og sitji sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Það er vægast sagt sérkennileg staða. En eftir sem áður er hér um að ræða siðferðilegt álitamál sem hver einstaklingur verður að gera upp við sig.

Orri kemur að andsvari sem Guðmundur Árni svarar.

Fundarhlé kl. 17:55. Fundi framhaldið kl. 18:18.

Valdimar kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar meirihluta leggja fram eftirfarandi bókun
Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn munu áfram vinna af heilindum að hagsmunum íbúa Hafnarfjarðar, í samræmi við málefnasáttmála flokkanna sem settur var fram í upphafi kjörtímabilsins. Traust ríkir milli flokkanna í meirihlutanum og mun samstarfið áfram byggjast á því að tryggja góða þjónustu við bæjarbúa, líkt og gert hefur verið á líðandi kjörtímabili.


Fundargerðir
10. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð umhvefis- og framkvæmdaráðs frá 4.mars sl.
Fundargerð fræðsluráðs frá 4.mars sl.
a. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 10.febrúar sl.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 3.mars sl.
Fundargerð bæjarráðs frá 5.mars sl.
a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 18.febrúar sl.
b. Fundargerð innkauparáðs frá 17.febrúar sl.
c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 25.febrúar sl.
d. FUndargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.febrúar sl.
e. Fundargerð stjórnar SSH frá 16.febrúar sl.
f. Fundarerð stefnuráðs byggðasamlaganna frá 27.febrúar sl.
g. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13. febrúar sl.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.mars sl.
Fundargerð forsetanefndar frá 9. mars sl.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls undir 17. lið í fundargerð bæjarráðs frá 5. mars sl.

Fundarhlé kl. 18:21. Fundi framhaldið kl. 18:23.

Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari.



Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:27 

Til bakaPrenta