| |
| 1. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029 | | Kynnt staða rekstrar fyrstu 3 mánuði ársins. | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 2. 2604435 - Strandgata 4-6, stöðuleyfi, Hjarta Hafnarfjarðar | | Lagt fram til kynningar. | Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir afar vandaða og greinargóða kynningu á umfangi og utanumhaldi hátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar. Ráðið lýsir yfir ánægju með hversu vel er staðið að öllu skipulagi og öryggisþáttum á svæðinu, sem tryggir örugga og góða upplifun gesta. Ráðið óskar aðstandendum til hamingju með 10 ára afmæli hátíðarinnar í ár. Hjarta Hafnarfjarðar hefur fyrir löngu skipað sér sess sem flottasta bæjarhátíð landsins og er mikilvægur liður í að auka afþreyingu og skemmtun í bænum. Með vísan til kynningarinnar heimilar umhverfis- og framkvæmdaráð lokun á bílastæðum við Linnetsstíg á meðan hátíðin stendur yfir. | | |
|
| 3. 2210096 - Götuhlaup í Hafnarfirði | | Frjálsíþróttadeild FH sækir um leyfi til götulokana á meðan Hafnarfjarðarhlupinu stendur þann 11. júní milli kl. 20:00 og 21:30. Vestari akgrein Strandgötu milli Flenborgartorgs og Fjarðartorgs verður alveg lokuð umferð. Það sama gildir um norður akgrein Vesturgötu milli Bæjartorgs Flókatorgs. Það sama gildir um norður akgrein Lækjargötu frá Fjarðartorgi að Strandgötu (vistgötu). Sama gildir um Strandgötu vistgötu. Annars verður umferð stýrt á svæðinu. Gera má ráð fyrir verulegum umferðartöfum í gegnum miðbæ Hafnarfjarðar á þessu tímabili. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir götulokanir í samræmi við beiðni. | | fh hlaupaleid_merkingaráætlun.pdf | | |
|
| 4. 2604459 - Klettahlíð, umferðaröryggi | | Lagt fram erindi íbúa að Furuhlíð 9 vegna aukins umferðarþunga í Klettahlíð og minnkandi búsetugæða. | | Lagt fram og vísað til sviðsins að svara erindinu. | | |
|
| 5. 2605177 - Klettahlíð, umferðaröryggi | | Lagt fram erindi íbúa að Furuhlíð 7 vegna aukins umferðarþunga í Klettahlíð og minnkandi búsetugæða. | | Lagt fram og vísað til sviðsins að svara erindinu. | | |
|
| 6. 2604482 - Lyngberg, hljóðvist | | Lagt fram erindi íbúa við Lyngberg þar sem óskað er eftir upplýsingum um úrbætur m.t.t. hljóðvistar á mön sem liggur meðfram Reykjanesbraut samsíða Lyngbergi. | | Lagt fram og afgreiðslu frestað þar til ákvörðun um framtíðarlegu Reykjanesbrautar liggur fyrir. | | |
|
| 7. 2605005 - Lífsgæðasetur St. Jósefsspítala, endurbætur á lóð | | Lagt fram erindi Hollvinasamtaka St. Jósefsspítala vegna endurbóta á lóð Lífsgæðasetursins. | | Lagt fram og bent á að hönnun garðs og bílastæða liggur fyrir. Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar gerð garðs og bílastæða til vinnu við fjárhagsáætlunagerð 2027. | | HF2304_A01_Yfirlitsuppdráttur_A3-200.pdf | | |
|
| 8. 2509825 - Stekkjarhvammur 21, lóð í fóstri | | Tekið fyrir að nýju. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 9. 2602238 - Sópun gatna og stíga 2026 | | Tekið fyrir. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir góða kynningu á stöðu götuhreinsunar í bænum. | | Powerpoint-2026 sópun.pdf | | |
|
| 10. 2404944 - Grassláttur í Hafnarfirði | | Tekið fyrir. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 11. 2103424 - Grænkun Valla | | Tekið fyrir. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar því að grænkun Valla er á réttri leið og verkefnið hafið. Sérstök áhersla verður lögð á hreinsun svæða í sumar. | | |
|
| 12. 1809488 - Tjaldstæðið, Víðistaðatúni | | Tekið til umræðu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra umhverfis og skipulagssviðs að vinna drög að samning milli Hafnarfjarðarbæjar og Ferðbúa varðandi rekstur tjaldsvæðis við Víðistaðatún. | | |
|
| 13. 1407049 - Fegrunarnefnd - Snyrtileikinn | | Tekið til umræðu. Á undanförnum árum hefur verið leitað til íbúa að senda inn tilnefningar um fallega garða og lóðir í bæjarfélaginu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að hafin verði undirbúningur að tilnefningum til viðurkenninga. Lögð er áhersla á að auglýsa eftir tilnefningum frá íbúum á öllum miðlum bæjarins og það verði gert reglulega í sumar. | | |
|
Stutt fundarhlé tekið.
| | 14. 2508537 - Miðstöðin - vinna og virkni fyrir fatlað fólk | | Lögð fram tillaga um breytingar á húsnæðinu að Selhellu 7 vegna aðstöðusköpunar fyrir atvinnu með stuðningi. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í málið og tekur undir bókun meirihluta fjölskylduráðs um að farið verði í breytingar á húsnæðinu að Selhellu 7. Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram í samvinnu við eigendur eignarinnar. Sviðsstjóra einnig falið að skoða möguleika à tilfærslum innan liða hjá sviðinu vegna kostnaðar á breytingunum. | | |
|
| 15. 2508284 - Reykjavíkurvegur, gangandi vegfarendur, umferðaröryggi | | Tekið fyrir að beiðni fulltrúa Samfylkingarinnar. | Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á tillögu sína í bæjarstjórn 27. ágúst 2025 og ítreka bókun sína síðan 3. september 2025 í ljósi þess að umferðarslys átti sér stað við Reykjavíkurveg á mánudaginn síðasta 11. maí, með þeim afleiðingum að ung stúlka slasaðist og var flutt á slysadeild. „Reykjavíkurvegur er varasamur yfirferðar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og mikilvægt að gripið verði til aðgerða til þess að bregðast við stöðunni. Einkum er vegurinn varasamur ungmennum í norður- og vesturbæ, sem þurfa að sækja íþróttaæfingar, aðrar tómstundir eða þjónustu á hraunum eða austan Reykjavíkurvegar. Þess vegna lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu á síðasta fundi bæjarstjórnar um að hefja þegar í stað undirbúning og hönnun undirgangna fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Samþykkt var að vísa henni til umræðu og umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að unnið verði hratt að lausn þessa máls enda ekki eftir neinu að bíða og nú þurfa verkin að tala.“ Það er mikilvægt að bregðast við strax svo ekki verði fleiri líkamstjón eða alvarleg slys. | | |
|
| 16. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa | | Lögð fram svör við beiðni fulltrúa Samfylkingarinnar um stöðu framkvæmda við bókasafnið frá síðasta fundi. | | Lagt fram. | | |
|