Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1981

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
29.09.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Hjördís Lára Hlíðberg varamaður,
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður
Í upphafi fundar leggur forseti til að mál nr. 3, 4 og 6 í útsendri dagskrá verði tekin af dagskrá fundarins. Er það samþykkt samhljóða.

Jafnframt ber forseti upp til atkvæða um að taka með afbrigðum inn á dagskrá fundarins málið Endurskoðun rekstrarsamnings við Bjarkirnar - 2206144. Er það samþykkt samhljóða.

Stofnun tímabundins starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð. Er það samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2609215 - Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag
5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 17.september sl.
Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag.

Meirihluti bæjarráðs samþykkir með fjórum atkvæðum gegn einu frá fulltrúa Miðflokks fyrirliggjandi samkomulag og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið sem verður svo sent bæjarstjórn til endanlegrar staðfestingar.


Bókun fulltrúa Miðflokksins:

Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar. Hafnarfjarðarbær skuldbindur sig til að úthluta tilteknu einkahlutafélagi lóðum á um tíu hektara svæði undir 260 íbúðareiningar fyrir starfsmenn fyrirtækja í verkefnatengdri vinnu. Búsetan verður bundin við vinnusamband, fjölskyldubúseta er ekki fyrirhuguð og húsnæðið verður utan hins almenna leigumarkaðar.
Veruleg hætta er á að slíkt starfsmannahverfi verði einsleitt og félagslega einangrað frá nærsamfélaginu. Saga braggahverfanna í Reykjavík sýnir að tímabundið húsnæði getur orðið mun langlífara en upphaflega var ráðgert og skapað viðvarandi húsnæðis- og skipulagsvanda.

Þá liggur ekki fyrir fullnægjandi rökstuðningur fyrir því að einum einkaaðila sé tryggð lóðaúthlutun, undanþága frá gatnagerðar- og innviðagjöldum og skilyrtur réttur til síðari lóðaúthlutunar undir varanlega íbúðabyggð. Ekki verður heldur séð að fram hafi farið auglýsing, samanburður við aðra aðila eða sjálfstætt mat á verðmæti þeirra réttinda sem samkomulagið veitir.

Fulltrúi Miðflokksins fær ekki séð að samkomulagið sé Hafnarfjarðarbæ í hag og getur því ekki samþykkt það af sinni hálfu.
Orri Björnsson tekur til máls og tekur fram að málið sé aðeins lagt fram á fundinum og er því ekki til afgreiðslu.

Valdimar Víðisson tekur til máls undir fundarstjórn forseta.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Orri kemur til andsvars.

Valdimar Víðisson tekur til máls.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls. Einar Geir kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari. Einar Geir kmeur ða öðru andsvari sem Árni Rúnar svarar.

Kristín Thoroddsen tekur til máls.

Valdimar tekur til máls öðru sinni.
20260915_Samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Styrkás_DRÖG_hreint.pdf
2606 - Frumdrog 5.pdf
2. 1809320 - Siðareglur kjörinna fulltrúa
3. liður úr fundargerð forsetanefndar frá 21. september sl.
Til umræðu.

Forsetanefnd vísar málinu til bæjarstjórnar til umræðu og skoðunar.
Árni Rúnar Þorvaldsson tkeur til máls.

Valdimar Víðisson tekur til máls. Árni Rúnar kemur að andsvari.

Forseti leggur til að málinu verði vísað að nýju til forsetanefndar. Er það samþykkt samhljóða.
Siðareglur kjörinna fulltrúa samþykktar í bæjarstjórn 1. mars 2023.pdf
3. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 22. september sl.

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 22. apríl sl. var samþykkt uppfærð tillaga að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Tillagan var í auglýsingu 7.5.-18.6.2026. Kynningarfundur var haldinn að Ásvöllum 20. maí sl. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram í skipulags- og byggingarráði 23.6.2026. Lögð fram viðbrögð Hafnarfjarðarbæjar við framkomnum athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040.

Fulltrúar Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingarinnar og Framsóknar í skipulags- og byggingarráði taka undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Miðflokksins bókar: Forsendur aðalskipulagsins byggir á framkvæmdum samgöngusáttmálans og Borgarlínu, þótt samgöngusáttmálinn sé ekki fullfjármagnaður og óvissa ríki um framvindu hans. Ekki liggur fyrir mat á áhrifum fyrirhugaðrar uppbyggingar ef Borgarlínan og aðrar lykilframkvæmdir tefjast eða koma ekki til framkvæmda. Fulltrúi Miðflokksins telur mikilvægt að það liggi fyrir áður en aðalskipulag er samþykkt.
Meirihluti skipulags- og byggingarráðs bókar: Aðalskipulag Hafnarfjarðar er áætlun og framíðarsýn bæjarins í skipulags- og byggingarmálum til ársins 2040. Þar er fjallað m.a. um uppbyggingu íbúðar-, atvinnu- og iðnaðarhúsnæðis ásamt samgöngumálum ofl. Aðalskipulagið byggir þannig á margvíslegum áætlunum s.s. um fjölgun íbúa ofl. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum sem aðalskipulagið byggir á þá er Borgarlína á áætlun og ekki ástæða til að gera mat um annað.
Orri Björnsson tekur til máls og tekur fram að málið sé lagt hér fram og bæjarfulltrúar fái gott svigrúm til að kynna sér málið áður en það verður endanlega afgreitt.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls.

Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúi Miðflokksins telur að ótrygg fjármögnun samgöngusáttmálans og boðuð lækkun ríkisframlaga gefi tilefni til endurmats á samgönguforsendum aðalskipulagsins. Ekki sé forsvaranlegt að byggja aðalskipulag Hafnarfjarðarbæjar áfram á áætlaðri uppbyggingu Borgarlínu án þess að bregðast við þeirri stöðu. Hafnarfjarðarbær getur haft frumkvæði að því að virkja endurskoðunarákvæði sáttmálans og beita sér fyrir breyttri forgangsröðun framkvæmda sem miði að því að bæta samgöngur bæjarbúa sem fyrst.
ASK HAF - Viðbrögð við umsögnum (1).pdf
Aðalskipulag_HAF-2040-greinargerð.pdf
ASK HAF-Umhverfismatsskýrsla.pdf
06_Bíla- og hjólastæðastefna.pdf
ASK HAF-Sveitarfélagsuppdráttur - Krýsuvík.pdf
ASK-HAF Sveitarfélagsuppdráttur - uppland.pdf
ASK HAF-Þéttbýlisuppdráttur.pdf
ASK HRAUN-VESTUR rammahluti.pdf
Samgöngumat Hraun Vestur.pdf
Hraun-vestur breytt landnotkun.pdf
Umhverfismat Hraun-vestur.pdf
Skipulags- og byggingarráð 260922.pdf
Slóð á skipulagsgátt.pdf
4. 2506152 - Skólabraut 5, breyting á deiliskipulagi
4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 22. september sl.
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 01.10.2025 var samþykkt að grenndarkynna erindi Jóns Grétars Magnússonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Tillaga gerir ráð fyrir breytingu á legu byggingarreits þannig að hann verði samsíða Hverfisgötu 56 og 58. Hámarksnýtingarhlutfall hækkar í 0,45. Fyrirhugað er að reisa einnar hæða hús með kjallara og risi á lóðinni.
Erindið var grenndarkynnt frá 25.02.2026 til 25.03.2026. Lögð fram svör við athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi
Samþykkt samhljóða.
0617 Hverfisgata 52 Deiliskipulag _ 2026.09.11.pdf
Skólabraut 5, samantekt athugasemda og svör.pdf
slóð á skipulagsgátt.pdf
5. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi
Fulltrúi Framsóknarflokks óskar eftir málinu á dagskrá. Til umræðu.
Valdimar Víðisson tekur til máls.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Framsóknar bóka eftirfarandi:
Fulltrúar Framsóknar telja miður að fyrirhuguð uppbygging Tækniskólans í Hafnarfirði hafi ekki gengið eftir með þeim hætti sem stefnt var að.
Að verkefninu var unnið af heilindum með það að markmiði að finna farsæla framtíðarlausn fyrir Tækniskólann í Hafnarfirði. Niðurstaðan varð önnur en lagt var upp með og mikilvægt er að draga lærdóm af því ferli.
Nú skiptir mestu að horfa fram á veginn. Fulltrúar Framsóknar eru tilbúnir til samtals og samstarfs um áframhaldandi uppbyggingu hafnarsvæðisins og þau tækifæri sem þar liggja. Svæðið hefur mikla þýðingu fyrir framtíðarþróun Hafnarfjarðar og mikilvægt er að halda áfram að vinna að metnaðarfullri og farsælli uppbyggingu þess.
Framsókn mun leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu, með hagsmuni Hafnarfjarðar og Hafnfirðinga að leiðarljósi.
Tækniskólinn heldur áfram sinni vegferð og við óskum skólanum alls hins besta við að finna farsæla framtíðarlausn.
6. 1812064 - Reglur um frístundastyrki
Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir málinu á dagskrá. Til umræðu.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls.

Kristín Thoroddsen tekur til máls.

Hjördís Lára Hlíðberg tekur til máls og flytur um leið sína fyrstu ræðu í bæjarstjórn. Kristín kemur til andsvars.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Kolbrún Magnúsdóttir tekur til máls.
7. 2206144 - Endurskoðun rekstrarsamnings við Bjarkirnar
Til umræðu.
Vadlimar Víðisson tekur til máls. Þórður Þórarinsson bæjarstjóri tekur til máls.

Kristín Thoroddsen tekur til máls.
8. 2609524 - Stofnun tímabundins starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð
Til umræðu.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls og leggur fram tillögu um stofnun starfshóps til að yfirfara fjárhagsaðstoð.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls og leggur jafnframt til að málinu verði vísað til fjölskyldurráðs til frekari umræðu og úrvinnslu. Einar Geir kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari.

Til máls tekur Viktor Pétur Finnsson. Árni Rúnar kemur að andsavri. Einar Geir kemur að andsvari.

Forseti ber upp framkomna tillögu um að vísa málinu til fjölskylduráðs og er það samþykkt með 10 atkvæðum en fulltrúi Miðflokks situr hjá.
Fundargerðir
9. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð fræðsluráðs frá 16.september sl.
a. Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar frá 25. ágúst og 8.september sl.
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 16.september sl.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 15.september sl.
Fundargerð bæjarráðs frá 17.september sl.
a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. september sl.
b. Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 2.september sl.
c. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst sl.
d. Fundargerðir orkusveitarfélaga frá 27.apríl, 18.júní og 21. ágúst sl.
e. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 24.ágúst og 11. september sl.
f. Fundargerð 56. eigendafundar Sorpu bs. frá 7.september sl.
g. Fundargerð stjórnar SSH frá 7.september sl.
h. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 28.ágúst sl.
i. Fundargerð 56. eigendafundar Strætó bs. frá 7.september sl.
Fundargerðir skipulags- og byggingaráðs frá 16. og 22. september sl.
Fundargerð forsetanefndar frá 21. september sl.
Valdimar Víðissin tekur til máls undir lið 9 í fundargerð fjölskylduráðs frá 15. september sl. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur að andsvari.

Kristín Thoroddsen tekur til máls undir fundargerð fræðsluráðs frá 16. september sl. þar sem fjallað var um Pisa könnun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:09 

Til bakaPrenta