Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 118

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
26.08.2026 og hófst hann kl. 10:15
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2608337 - Axlarás 7, breyting á deiliskipulagi
Andri Ingólfsson f.h. lóðarhafa sækir 25.08.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin gerir ráð fyrir breytingu á texta í greinargerð varðandi útbyggingar og skyggni/skjólvegg við anddyri.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Axlarás 7, breyting á greinagerð.pdf
2. 2608339 - Straumhella 18, breyting á deiliskipulagi
Jón Davíð Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir þann 25.08.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í tilfærslu á innkeyrslu um 25 m til austurs.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppdráttur hefur verið lagfærður.
D-hluti fyrirspurnir
3. 2608278 - Hringhamar 10-14, fyrirspurn
Hildur Steinþórsdóttir f.h. lóðarhafa leggur þann 20.08.2026 fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að hæðarmuninum verði miðlað með aðlögun á gangstétt og göngustíg ásamt gróðurbeðum, án þess að breyta útbrúnum gangstéttar að götu eða meginfyrirkomulagi skipulagsins.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20.08.2026, bent er á að sækja þarf um lóðarstækkun til bæjarráðs.
Hringhamar 10-14, umsögn skipulags.pdf
F-hluti önnur mál
4. 2607017 - Hverfisgata 37 og Vitastígur 10, stækkun lóða
Ingvar Högni Ragnarsson sækir þann 30.6.2026 um stækkun lóða við Hverfisgötu 37 og Vitastíg 10.
Erindinu er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
5. 2605175 - Dverghella 2, stækkun lóðar
Páll Poulsen f.h. lóðarhafa óskar þann 08.05.2026 eftir stækkun lóðar sem nær yfir hraunsvæðið á milli Dverghellu 2 og Dofrahellu 2. Jafnframt er sótt um stækkun byggingarreits.
Erindinu er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15 

Til bakaPrenta