| |
| 1. 2607095 - Óseyrarbraut 26, MHL.02, byggingarleyfi | | Hallur Kristmundsson f.h. lóðarhafa sækir 07.07.2026 um að reisa spennistöð, mhl.02, á suðausturhorni lóðarinnar. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 2. 2610709 - Norðurbakki 7c, íbúð 405, svalalokun | | Kristinn A Jóhannesson sækir 29.10.2026 um svalalokun á íbúð 01 0405 við Norðurbakka 7c. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 3. 2606658 - Stálhella 24, byggingarleyfi | | Eyjólfur Valgarðsson f.h. lóðarhafa sækir þann 24.06.2026 um byggingarleyfi fyrir 780,5 fm. stálgrindarhúsi. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 4. 2607101 - Brunnás 8, byggingarleyfi | | Hulda Jónsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 07.07.2026 um leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð úr forsteyptum einingum. Þrjú bílastæði verða við húsið ásamt sorptunnuskýli. | | Erindinu er synjað, samræmist ekki skipulagi. | | |
|
| |
| 5. 2610384 - Tinnuskarð 18, breyting á deiliskipulagi | | Sigríður Arngrímsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 13.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Tvíbýlishúsi á tveimur hæðum og bílakjallara er breytt í tvílyft parhús með innbyggðum bílskúrum. Bætt er við tveimur bílastæðum á lóð þannig að tvö bílastæði verða fyrir hverja íbúð. Byggingarreitur breytist. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppfærð gögn hafa borist. | | |
|
| 6. 2611263 - Tinnuskarð 4, breyting á deiliskipulagi | | Valur Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa sækir 10.11.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í fækkun hæða úr þremur í tvær ásamt breytingu á byggingarreitum. Einnig er afmarkaður sérstakur byggingarreitur neðanjarðar fyrir tæknirými við framhlið húss. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Tinnuskarð 4, deiliskipulagsbreyting, tillaga.pdf | | |
|
| 7. 2610274 - Dverghella 2, breyting á deiliskipulagi | | Páll Poulsen f.h. lóðarhafa sækir 08.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í stækkun á lóð og byggingarreit út í núverandi skilgreint opið svæði/óhreyft hraun að vestari lóðarmörkum lóðar við Dofrahellu 2 og 4. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Dverghella 2, deiliskipulagsbreyting, tillaga.pdf | | |
|
| 8. 2609435 - Hverfisgata 13, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 30.09.2026 var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga umsókn Haralds Ingvarssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að heimilt verði að hækka mæni aðalþaksins og koma fyrir kvistum á fram- og bakhlið þess. Erindið var grenndarkynnt frá 7.10.2026 til 4.11.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á Skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 9. 2609492 - Heiðvangur 16, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 30.09.2026 var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga umsókn Sigurðar Þorvarðarsonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í gerð nýs byggingarreits fyrir bílskúr á suðvesturhluta lóðarinnar ásamt innkeyrslu og tilfærslu á bílastæðum. Jafnframt er gert ráð fyrir tengibyggingu innan núverandi byggingarreits. Erindið var grenndarkynnt frá 7.10.2026 til 4.11.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á Skipulagsgátt.pdf | | |
|
| |
| 10. 2610501 - Títanhella 3 og 5, Nikkelhella 2,4,6 og 8 og Koparhella 7 og 9, fyrirspurn | | Kári Eiríksson f.h. Reisingar byggingarfélags ehf. leggur þann 19.10.2026 fram fyrirspurn sem varðar sameiningu lóðar. Lóðirnar Títanhella 3 og 5 eru sameinaðar og verða Títanhella 3. Lóðirnar Nikkelhella 6 og 8 eru sameinaðar og verða Nikkelhella 4. Lóðirnar Nikkelhella 2 og 4 og Koparhella 7 og 9 verða sameinaðar í eina lóð sem verður Nikkelhella 2. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.10.2026. | | Títanhella 3 og 5, Nikkelhella 6 og 8, Nikkelhella 2 og 4 og Koparhella 7 og 9, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| |
| 11. 2610702 - Krýsuvíkurvegur, framkvæmdarleyfi | | Svanur Geir Bjarnason f.h. Vegagerðarinnar sækir 28.10.2026 um framkvæmdaleyfi fyrir lagfæringu öryggissvæðis meðfram Krýsuvíkurvegi frá Leiðarendavegi að námuvegi við Vatnsskarðsnámum. | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi. | | |
|
| 12. 2610714 - Hellisgerði, stöðuleyfi, söluskáli | | Helliskaffi ehf. sækir 30.10.2026 um stöðuleyfi fyrir garðhúsi fyrir framan Helliskaffi í Hellisgerði. | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs. Hvað varðar fjarlægð milli mannvirkja er fallist á þá brunatæknilegu útfærslu og tækniskipti sem fram koma í greinargerð brunahönnuðar, með vísan til 9.2. kafla og ákvæða 9.7. kafla byggingarreglugerðar nr. 112/2012 um varnir gegn útbreiðslu elds milli bygginga. | | Brunavarnir vegna smáhýsis við Oddrúnarbæ.pdf | | |
|
| 13. 2611209 - Jólaball í Hellisgerði, viðburður | | Inga Harðardóttir f.h. Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sækir 05.11.2026 um afnot af Hellisgerði í tengslum við Jólaball þann 13.12.2026 frá kl. 11.00 til 13:00. | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar umbeðinn viðburð í Hellisgerði. Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi. | | |
|
| 14. 2611208 - Jólaþorpið í Hafnarfirði, ferðasalerni, stöðuleyfi | | Sunna Magnúsdóttir f.h. Hafnarfjarðarbæjar sækir þann 05.11.2026 um stöðuleyfi fyrir þrjú ferðasalerni í tengslum við Jólaþorpið í Hafnarfirði, við Hjartasvellið, við Hellisgerði og við tjaldið bak við Bæjarbíó. Tímabil 12.11.2026-28.12.2026. | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir stöðuleyfi umbeðið tímabil. | | |
|
| 15. 2611274 - Jólatrjáa- og flugeldasala, skilti á bæjarlandi, stöðuleyfi | | Björgunarsveit Hafnarfjarðar sækir 10.11.2026 um leyfi fyrir tímabundna uppsetningu auglýsingaskilta í bæjarlandi vegna jólatrjáa- og flugeldasölu frá 1.12.2026 til 10.01.2027. | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar Björgunarsveit Hafnarfjarðar uppsetningu skilta skv. beiðni. | | |
|