| |
| 1. 2511294 - Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 2025 og fyrirtækja hans | | Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. | Bæjarráðs smaþykkir fyrirliggjandi ársreikning og vísar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Samkvæmt fyrirliggjandi ársreikningi Hafnarfjarðar fyrir síðasta ár var reksstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs neikvæð um rúmlega 1,1 milljarð en rekstrarhluti A og B hluta var jákvæð um 50 milljónir. Þetta gerist þrátt fyrir auknar tekjur miðað við áætlanir. Einnig kemur fram að alls voru tekin ný lán upp á rúma 6 milljarða en greiddar voru afborganir alls tæplega 2,5 milljarðar og langtímaskuldir hækka um rúma 2,3 milljarða milli ára. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar munu gera grein nánari grein fyrir afstöðu sinni við fyrri og síðari umræðu um málið í bæjarstjórn.
| | Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar 2025 - Bæjarráð.pdf | | |
|
| 2. 2603608 - Krýsuvíkursveimar, rannsóknarleyfi umsagnarbeiðni | | Lögð fram beiðni Umhverfis- og orkustofnunar um umsögn vegna umsóknar Orkuveitunnar um leyfi til rannsóknar og leitar að jarðhita á Krýsuvíkursveimum. | | Bæjarráð vísar málinu til umsagnar hjá umhverfis- og skipulagssviði. | | Krýsuvíkursveimar - rannsóknarleyfisumsókn 2026.pdf | | |
|
| 3. 2603650 - Bæjarráðsstyrkir 2026, fyrri úthlutun | | Lagt fram | | |
|
| 4. 2604146 - Björgvin Halldórsson, ævi og störf, sýning | | Til umræðu | Sýning um ævi og feril Björgvins Halldórssonar.
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir að fela menningar- og ferðamálanefnd, í nánu samstarfi við fjölskyldu Björgvins, Byggðasafn Hafnarfjarðar og aðra fagaðila, að undirbúa og setja upp sýningu á munum og myndum frá glæsilegum ferli tónlistarmannsins Björgvins Halldórssonar.
Björgvin var fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og alla tíð stoltur af bænum sínum. Hann var útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 og átti í einstöku og dýrmætu sambandi við bæjarbúa, hvort sem það var í gegnum tónleika hans í Bæjarbíói eða önnur störf tengd menningarmálum í bænum. Framlag hans til íslenskrar tónlistarsögu og listalífs er ómetanlegt en Hafnfirðingar eru sérstaklega þakklátir fyrir hans ævistarf.
Hugmyndin að slíkri sýningu á sér rætur í samtöl sem þegar voru hafin við Björgvin sjálfan sem var mjög áhugasamur um verkefnið. Með því að leggja fram tillöguna í dag á 75 ára afmælisdegi Björgvins vill Hafnarfjarðarbær heiðra minningu hans og sýna í verki virðingu og þakklæti fyrir hans mikilvæga framlags til bæjarins. Tillagan er lögð fram í fullu samráði við fjölskyldu Björgvins.
Tillögunni er vísað til menningar- og ferðamálanefndar til frekari útfærslu og vinnslu.
| | |
|
| 5. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi | | Lagt fram bréf frá Skólastræti. | | Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| 6. 2603486 - Víkingastræti 1h, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn HS Veitna | | Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við umsókkn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
|
| 8. 2604104 - Hvaleyrarbraut 32, umsókn um lóð | | Lögð fram beiðni um lóðarstækkun | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindi. | | |
|
| 9. 2604156 - Furuhella og Birkihella, ósk um lóðarvilyrði | | Lögð fram beiðni um lóðarvilyrði. | | Bæjarráð samþykkir að veita vilyrði fyrir lóðunum í 12 mánuði. | | Bréf til bæjarráðs.pdf | | |
|
| 10. 2512706 - Sveitarstjórnarkosningar 2026 | | Lagður fram listi yfir undirkjörstjórnir og starfsfólk þeirra. | | Samþykkt. | | Undirkjörstjórnir.pdf | | |
|
| 11. 2603440 - Breiðhella 2, umsókn um lóðarstækkun | | Lögð fram umsókn um lóðarstækkun | | Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna málið áfram. | | Breiðhella 2, umsókn um lóðarstækkun.pdf | | |
|
| 12. 2604123 - Tunguhella 8, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn GH17 ehf. um lóðina nr. 8 við Tunguhellu. | | Fulltrúi sýslumanns dró úr umsóknum og dregin var út umsókn SÁR ehf. Til vara var dregin út umsókn GH17 ehf. | | |
|
| 13. 2604054 - Tunguhella 8, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn FimmX Verk ehf. um lóðina nr. 8 við Tunguhellu. Til vara er sótt um lóðina nr. 6 við Tunguhellu. | | Fulltrúi sýslumanns dró úr umsóknum og dregin var út umsókn SÁR ehf. Til vara var dregin út umsókn GH17 ehf. | | |
|
| 14. 2604138 - Tunguhella 8, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn SÁR ehf. um lóðina nr. 8 við Tunguhellu. | | Fulltrúi sýslumanns dró úr umsóknum og dregin var út umsókn SÁR ehf. Til vara var dregin út umsókn GH17 ehf. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
| 15. 2604139 - Tunguhella 6, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn SÁR ehf. um lóðina nr. 6 við Tunguhellu. | Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar í bæjarstjórn.
| | |
|
| 16. 2604141 - Hringrásargarður | | Lagt fram erindi frá Gröfu og Grjóti ehf. dags. 7.apríl sl. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins. | | Vísað til skipulags- og byggingarráðs. | | Erindi til Bæjarráðs Hafnarfjarðar - Hringrásargarður.pdf | | Hringrásargarðurinn-kynning.pdf | | Hringrásargarðurinn-skema.pdf | | |
|
| 17. 2511483 - Krýsuvík, kynning | | Lögð fram drög að viljayfirlýsingu | Lagt fram.
Fulltrúar Samfylkingarinnar líta jákvæðum augum á erindið enda er um að ræða spennandi hugmyndir til framtíðar. Það er hins vegar ljóst að það verður verkefni nýrrar bæjarstjórnar að loknum kosningum 16. maí nk. að leiða þetta mál til lykta í ljósi þess hve stutt er eftir af yfirstandandi kjörtímabili. | | |
|
| 18. 2604127 - Krýsuík, lóðafyrirkomulag | | Lagt fram erindi frá Krýsvíkursamtökunum dags. 13.apríl sl. | | Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| 19. 2604119 - Sveitarstjórnarkosningar 2026, lýðræðisleg þátttaka barna, Krakkakosningar | | Lagt fram bréf frá Umboðsmanni barna varðandi Krakkakosningar. | | |
|
| 20. 2208236 - Bæjarstjórn, starfsumhverfi 2022-2026 | | Lagt fram minnisblað | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir framlagt minnisblað bæjarlögmanns vegna málsins sem varðar framkvæmd bæjarstjórnarfundar þann 25. mars sl. þar sem tveimur málum Samfylkingarinnar var vísað frá í upphafi fundar að tillögu forseta bæjarstjórnar, annars vegar Frítt í Strætó fyrir 12-17 ára ungmenni og hins vegar Íbúðir fyrir eldra fólk. Ýmsar spurningar vakna við lestur minnisblaðsins sem aðallega lúta að meðferð valds hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn og þess vegna mun Samfylkingin fara fram á umræðu um málið á næsta fundi bæjarstjórnar því hér er um grundvallarmál að ræða sem varðar lýðræðisleg vinnubrögð bæjarstjórnar.
| | |
|
| 21. 2311460 - Ný heilsugæsla í Hafnarfirði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og fara fram á upplýsingar um stöðu þess. | Fulltrúar Samfylkingarinnar vísa í eftirfarandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar í Fjölskylduráði:
Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa reglulega sett nýja heilsugæslu á dagskrá fjölskylduráðs, bæjarráðs, og bæjarstjórnar til þess að reyna að hreyfa við málinu. Jafnframt höfum lagt til að farið yrði í formlegar viðræður með fulltrúum meiri- og minnihluta í bæjarstjórn við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um nýja heilsugæslu miðsvæðis á Völlum sem gæti þjónustað um 20 þúsund notendur í nýjustu hverfum bæjarins; Völlum, Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi. En meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnan vísað þeirri tillögu frá. Í framlögðu minnisblaði bæjarstjóra er ekki minnst á þessa tillögu Samfylkingarinnar og eingöngu að finna bókanir meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vegna málsins. Fulltrúar Samfylkingarinnar gera athugasemdir við þessa framsetningu bæjarstjóra í fyrrnefndu minnisblaði. Lítið hefur þokast í málinu síðan horfið var frá þeim fyrirætlunum að ný heilsugæsla myndi rísa samhliða nýju hjúkrunarheimili í Hamranesi. Brýnt er að ný heilsugæsla, sem þjónar fyrrnefndum hverfum, rísi sem fyrst enda mikil þörf fyrir endurbætta þjónustu í nýjum hverfum bæjarins.
Fulltrúar meirihluta bæjarráðs vísa í bókun meirihlutans í fjölskylduráði en þar kom fram að ekki hefur staðið á sveitarfélaginu sem hefur lýst yfir vilja á undanförnum árum á opnun á nýrri heilsugæslu í bænum. Óskað hefur verið eftir viðræðum við ríkið um aðkomu að verkefninu með því að leggja fram lóð eða taka þátt í verkefninu með öðrum hætti. Það er í höndum ríkisstjórnar að klára málið fyrir fullt og allt svo uppbygging geti hafist að nýrri heilsugæslu á völlunum.
| | |
|
| 22. 2503513 - Straumhella 6, breyting | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Farið er fram á að öll samskipti við málsaðila verði lögð fram. | | Til umræðu. | | |
|
| 23. 2505012 - Einkaframkvæmdasamningar, fyrirspurn | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðu þeirra einkaframkvæmdasamninga sem eru enn í gildi, en renna út á næstu árum, eins og Áslandsskóli. Liggja fyrir áætlanir um kaupverð þessara eigna af leigusala, þegar leigutími rennur út? | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir minnisblaði frá bæjastjóra um stöðu einkaframkvæmdarsaminga hjá Hafnarfirði og þeim viðræðum sem hafa átt stað við eigendur vegna þeirra á næsta fundi bæjarráðs.
| | |
|
| |
| 24. 2601554 - Heilbrigðiseftirlit, fundargerðir 2026 | | Lagðar fram fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 24.febrúar og 30. mars sl. | | |
|
| 25. 2603002F - Menningar- og ferðamálanefnd - 472 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 8.apríl sl. | | |
|
| 26. 2502502 - Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð stjórnar SHS frá 13.mars sl. | | |
|
| 27. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026 | | Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 10. og 20. mars sl. | | |
|