Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1980

Haldinn í Fríðrikssal, Bókasafni Hafnarfjaðar, 2. hæð, Firði,
09.09.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður
Forseti setur fundinn og í upphafi leggur hann til að mál nr. 5 á dagskrá fundarins verði tekið af dagskrá fundarins. Er það samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1602410 - Fjölmenningarráð
Kosning fulltrúa í Fjölmenningarráð Hafnarfjarðar í samræmi við erindisbréf. Kosnir eru tveir fulltrúar og tveir til vara og formaður og varaformaður úr hópi aðalmanna. Tveir fulltrúar og tveir til vara eru kjörnir að fenginni tilnefningu félagasamtaka sem starfa að málefnum innflytjenda og einn fulltrúi af erlendum uppruna úr hópi starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar að fenginni tilnefningu frá sviðsstjórafundi.
Eftirfarandi tilnefndir:

Aðalmaður og formaður:
Paula Wiszniewska - D
Aðalmaður:
Kolbrún Magnúsdóttir - B

Varamenn:
Valdimar Aðalsteinsson - S
Kolbrún K. Róbertsdóttir - M

Tilnefingar frá félagasamtökum:
Sylwia Baginska, Móðurmál - samtök um tvítyngi
Til vara: Jorika Trundova, GETA ? Samtök
Laura Cervera, Samtök kvenna af erlendum uppruna
Til vara: Lisa Marie Maríudóttir Mahmic, foreldraráð Hafnarfjarðar

Tilnefningar úr hópi starfsfólks Hafnarfjarðar:
Aleksandra Julia Wegrzyniak, þjónustufulltrúi á tæknisviði
Til vara: Stephen James Midgley, aðstoðarleikskólastjóri

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum kosningu ofangreindra aðila í fjölmenningarráð

Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við atkvæðagreiðslu.

Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við kjör fulltrúa í fjölmenningarráð og ítrekar þá afstöðu að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess að starfrækja þetta ólögbundna, launaða ráð. Tillögu Miðflokksins um að leggja ráðið niður og tryggja nauðsynleg verkefni þess innan stjórnsýslunnar var vísað frá á síðasta bæjarstjórnarfundi með tíu atkvæðum gegn einu.
Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu fara bæði sætin sem bæjarstjórn velur beint til fólks af framboðslistum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Aðrir fulltrúar koma eftir tilnefningum félagasamtaka og úr hópi starfsmanna bæjarins.
Þeir flokkar sem studdu áframhald ráðsins þurfa að geta rökstutt nauðsyn þess og kostnaðinn sem því fylgir. Að mati fulltrúa Miðflokksins hefur ekki verið sýnt fram á hvers vegna verkefnastjóri fjölmenningarmála og viðkomandi fagráð og fagsvið geti ekki sinnt nauðsynlegum verkefnum ráðsins og átt samráð við þessi sömu félagasamtök. Miðflokkurinn mun áfram fylgja því eftir að útgjöld vegna ólögbundinna verkefna séu rökstudd og leitað sé hagkvæmari leiða til að sinna þeim.

2. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.september sl.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 24. apríl var samykkt að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags Undirhlíðanámu. Tillagan er kynnt samhliða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025 - 2040 m.a. til að samnýta mikilvægt samráð við Vegagerðina, Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, HMS og heilbrigðiseftirlitið. Með gildistöku deiliskipulagsins mun deiliskipulag fyrir Undirhlíðar, sem var samþykkt 2006 m.s. br. falla úr gildi. Vinnslutillagan var í auglýsingu 7.5.-19.6.2026. Svör við athugasemdum vinnslutillögunnar ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu.

Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu.
Samþykkt samhljóða.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
Samantekt umsagna Undirhlíðar.pdf
DSK_Undirhlíðarnáma_greinargerð.pdf
DSK_Undirhlíðarnáma_uppdráttur.pdf
3. 2603148 - Hryggjarás 23, umsókn um lóð
9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 3.september sl.
Lögð fram umsókn Gísla Más Guðmundssonar um lóðina nr. 23 við Hryggjarás.

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
4. 2607073 - Hryggjarás 9, umsókn um lóð
10.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 3.september sl.
Lögð fram umsókn Egils Björnssonar um lóðina nr. 9 við Hryggjarás.

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
5. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir málinu á dagskrá.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 verði miðað við að almennar gjaldskrárhækkanir A-hluta Hafnarfjarðarbæjar verði ekki umfram 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

Lagt er fyrir bæjarráð að útfæra viðmiðið nánar við undirbúning fjárhagsáætlunar og leggja fyrir bæjarstjórn yfirlit yfir fjárhagsleg áhrif þess og tillögur að því hvernig þeim verði mætt. Við þá vinnu verði sérstaklega horft til forgangsröðunar og aðhalds í rekstri og samanlagðra áhrifa gjaldskrárbreytinga á barnafjölskyldur. Teljist nauðsynlegt að víkja frá viðmiðinu vegna einstakra gjaldskráa skal leggja fram sérstakan rökstuðning fyrir því.

Markmiðið er að halda aftur af útgjöldum íbúa vegna þjónustu bæjarins og að Hafnarfjarðarbær geri það sem hann getur til að stuðla að minni verðbólguþrýstingi. Jafnframt að þessari tillögu verði vísað til bæjarráðs.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Orri Björnsson tekur til máls.

Valdimar Víðisson tekur til máls undir fundarstjórn forseta.

Bæjarstjórn samþykkir að framlagðri tillögu verði vísað til bæjarráðs.

Karólína Helga Símonardóttir kemur að svohljóðandi bókun:

Meirihluti bæjarstjórnar tekur undir mikilvægi þess að sýna hófsemi við ákvörðun gjaldskráa sveitarfélagsins. Heimili og fyrirtæki hafa á undanförnum árum þurft að takast á við miklar verðlags- og vaxtahækkanir og það er sameiginlegt verkefni okkar allra að gæta að því að kostnaðarauki hins opinbera leggist ekki óþarflega á íbúa.

Ábyrg fjármálastjórn felst þó ekki eingöngu í því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum heldur einnig í því að tryggja skilvirkan og traustan rekstur. Þess vegna er nú unnið að ítarlegri rekstrarúttekt á starfsemi bæjarins. Meirihlutinn bindur vonir við að niðurstöður hennar liggi fyrir sem fyrst og muni nýtast til að finna raunveruleg tækifæri til hagræðingar og bæta nýtingu fjármuna, í samræmi við það markmið sem sett er fram í málefnasamningi meirihlutans um traustan rekstur og sterka fjárhagsstöðu Hafnarfjarðar.

Jafnframt er skýr stefna meirihlutans að bæta fjárhagsstöðu bæjarins án þess að skerða þjónustu við íbúa. Útsvar verður ekki hækkað á kjörtímabilinu og fasteignagjöld munu ekki hækka umfram verðlag.
Meirihlutinn mun því halda áfram að leita allra leiða til hagræðingar og forgangsraða fjármunum af ábyrgð. Markmiðið er að halda álögum á íbúa í hófi, standa vörð um öfluga grunnþjónustu og tryggja að Hafnarfjörður byggi upp traustan og sjálfbæran rekstur til framtíðar.





Fundargerðir
6. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2.september sl.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 1.september sl.
Fundargerð bæjarráðs frá 3.september sl.
a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 26.ágúst sl.
b. Fundargerð stjórnar SSH frá 17.ágúst sl.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.september sl.
Fundargerð fræðsluráðs frá 2.september sl.
Fundargerð forsetanefndar frá 7.september sl.
Kolbrún Magnúsdóttir tekur til máls undir lið 4 í fundargerð fræðsluráðs frá 2. september þar sem rætt var um öryggismál í grunnskólum. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur að andsvari sem Kolbrún svarar.

Kristín Thoroddsen tekur til máls undir sama máli í fundargerð fræðsluráðs sem og máli nr. 1 í fundargerð fræðsluráðs þar sem rætt var um stöðu á innritun í leikskóla í Hafnarfirði.

Árni Rúnar tekur til máls undir 4. og 6. fundargerð fjölskylduráðs frá 1. september sl. þar sem rætt var um barnvænt samfélag og farsældarverkefnið.
Í lok fundar upplýsir forseti bæjarstjórnar um að næsti fundur bæjarstjórnar mun fara fram þriðjudaginn 29. september nk. og hefst kl. 14.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:45 

Til bakaPrenta