Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 98

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
18.03.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Viktor Sigurðsson aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Katrín Heiðar aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2601101 - Tunguhella 17, byggingarleyfi
Sigríður Ólafsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 07.01.2026 um leyfi fyrir nýbyggingu fyrir verslun, verkstæði og lagerrými.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2601139 - Óseyrarbraut 12b, MHL.03, byggingarleyfi
Stefán Hallsson sækir 07.01.2026 um byggingarleyfi fyrir iðnaðar og skrifstofubyggingu, fyrir framleiðslu á vörubrettum, úr tré. Húsið er forsmíðað stálgrindarhús á steinsteyptum undirstöðum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2602271 - Dverghella 10, byggingarleyfi
Jón Magnús Halldórsson f.h. lóðarhafa sækir 13.02.2026 um leyfi til að byggja stálgrindarhús á steyptum sökkli klætt yleiningum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2602498 - Jötnahella 4, byggingarleyfi
Sigríður Ólafsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 23.02.2026 um leyfi fyrir byggingu úr límtré og samlokueiningum með 20 aðskildum rýmum sem nýta má sem geymsluhúsnæði eða húsnæði fyrir léttan iðnað. Byggingin er að stærstu leyti ein hæð en í 4 rýmum er gert ráð fyrir milliloftum.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2603067 - Íshella 1, breyting
Jón Magnús Halldórsson f.h. lóðarhafa sækir 02.03.2026 um smávægilega breytingu á innra skipulagi. Opnað verður á milli rýma 0101 og 0104 og greinargerð brunamála uppfærð.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2602454 - Mávahraun 16, reyndarteikningar
Sigríður Arngrímsdóttir f.h. lóðarhafa leggur 19.02.2026 inn reyndarteikningar á þegar samþykktum áformum með þeim breytingum sem urðu innanhúss, vegna lokaúttektar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2603194 - Völuskarð 7, reyndarteikningar
Valur Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa leggur 09.03.2026 inn breytingar á áður samþykktum teikningum. Breytingin felur í sér breytingu á lóðarfrágangi og einstaka liðum í innraskipulagi vegna lokaúttektar.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 2603237 - Álfholt 10, pallur
Andri Ingólfsson f.h. Kristjáns Sigmundssonar óskar 10.03.2026 eftir að fá afmarkaðan sérafnotareit við Álfholt 10, íbúðareign 01 0101 og leyfi fyrir palli.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa synjar erindinu. Samræmist ekki lögum um fjöleignarhús, lóð er sameign allra.
F-hluti önnur mál
9. 2603193 - Herjólfsgata, herjólfsgufa, stöðuleyfi
Herjólfsgufan ehf. sækir 09.03.2026 um stöðuleyfi fyrir sauna við Herjólfsgötu (á göngustíg fyrir framan Herjólfsgötu 36) frá 01.05.2026 til 30.04.2027.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta