Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 100

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
04.03.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2602471 - Hringbraut 54A, breyting á deiliskipulagi
Kári Eiríksson f.h. lóðarhafa sækir 20.02.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin snýr að færslu og stækkun á byggingarreit. Ástæða deiliskipulagsbreytingar er ósamræmi milli byggingarreits í gildandi deiliskipulagi og á útgefnu lóðarblaði.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Hringbraut 54A, deiliskipulagsbreyting.pdf
2. 2602598 - Straumhella 26, breyting á deiliskipulagi
Vissa ráðgjöf ehf. f.h. lóðarhafa sækir 25.02.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að viðbótar innkeyrsla verður inn á lóð Straumhellu 26 frá Dverghellu. Eftir breytingu verða tvær innkeyrslur á lóð nr. 26. Staðsetning innkeyrslu er a.m.k. 10 m austan lóðarmarka til vesturs, og hámarks breidd innkeyrslu er 10 m.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Straumhella 26, breyting á deiliskipulagi.pdf
3. 2602595 - Selhella 7-9, breyting á deiliskipulagi
Gunnlaugur Jónasson f.h. lóðarhafa sækir 25.02.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að stækka byggingarreit um 10,5 m til norðurs svo megi byggja við húsið og stækka vörumóttökusal.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppdráttur hefur verið uppfærður.
4. 2603116 - Álhella 9, breyting á deiliskipulagi
Össur Imsland f.h. lóðarhafa sækir 04.03.2026 um breytingu á deiliskipulagi til að koma fyrir byggingarreit fyrir skilti ásamt tilfærslu- og auka innkeyrslustútum inn á lóð.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppdráttur hefur verið uppfærður.
D-hluti fyrirspurnir
5. 2602472 - Heiðvangur 16, fyrirspurn
Sigurður Þorvarðarson f.h. lóðarhafa leggur 23.02.2026 fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að bætt er við tengibyggingu, bætt er við nýrri bifreiðageymslu og innkeyrslu.
Tekið er neikvætt í erindið er varðar nýja bílgeymslu, tengibygging samræmist deiliskipulagi, samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 03.03.2026.
Heiðvangur 16, umsögn skipulags.pdf
6. 2602597 - Furuvellir 31, fyrirspurn
Steinunn Geirsdóttir leggur 25.02.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir að færa léttan vegg sem aðskilur geymslu og bílskúr til að gera aðstöðu fyrir dýralækni.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25.02.2026.
Furuvellir 31, umsögn skipulags.pdf
7. 2602625 - Traðarberg 27, fyrirspurn
Bjarni Már Júlíusson leggur 26.02.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir stækkun á bílastæði framan við hús.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26.02.2026.
Traðarberg 27, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta