| |
| 1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Tekin til umræðu vinna við fjárhagsáætlun 2027-2031. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 2. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029 | | Kynnt staða rekstrar fyrstu 5 mánuðina, fjárfestingaráætlun 2026 og viðhaldsáætlanir í húsnæði bæjarins. | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 3. 2606149 - Erindisbréf ráða og nefnda | | Lögð fram tillaga að breytingum á erindisbréfi umhverfis- og framkvæmdaráðs. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir breytingar á 9. grein erindisbréfsins og vísar til staðfestingar í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. | | |
|
Halldór Ingólfsson verkefnastjóri mætir til fundarins undir fjórða dagskrárlið.
| | 4. 2605590 - Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar | | Lögð fram tillaga að áfangaskiptingu við frágang í nýjum hverfum. | | Lagt fram og vísað til fjárhagsáætlunargerðar. | | |
|
| 5. 2307094 - Hávaðakortlagning og aðgerðaáætlun sbr. ákvæði í reglugerð nr. 1000 2005 | | Tekið fyrir að nýju. Áætlunin var í kynningu 12. maí - 15. júní 2026. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir aðgerðaráætlun gegn hávaða á árunum 2023 - 2028 og vísar til bæjarráðs, í umboði bæjarstjórnar, til staðfestingar. | | https://hafnarfjordur.is/drog-ad-adgerdaaaetlun-vegna-havada-athugasemdir-oskast/
| |
|
Ishmael David verkefnastjóri mætir til fundarins undir sjötta dagskrárlið.
| | 6. 1106043 - Gatnalýsing í Hafnarfirði | | Lögð fram niðurstaða útboðs á viðhaldi gatnalýsingar. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að leitað sé samninga við lægstbjóðandi, Rafal ehf. | | |
|
| 7. 1806195 - Samningur um götugögn milli Hafnarfjarðarbæjar og AFA JC 2018 | | Lögð fram drög að framlengingu á samningi við Billboard ehf. (Buzz) varðandi biðskýli og fjölgun þeirra í Hafnarfirði. BUZZ tók yfir eldri samning AFAjcdecaux á Íslandi við Hafnarfjörð, dags. 3. október 2000. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlengingu samnings til 10 ára. | | |
|
| 8. 2605247 - Kæra á útboði - Hellnahraun 4, mál nr 26 2026 | | Lögð fram ákvörðun í máli 26-2026 varðandi útboð á gatnagerði í Hellnahrauni 4. | | Lagt fram. | | Ákvörðun í máli nr. 26-2026.pdf | | |
|
| 9. 2602441 - Hellnahraun 4, gatnagerð | | Tekið til umræðu. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 10. 2605421 - Knatthús Hauka útboð kæra 312026 | | Lögð fram ákvörðun í máli 27-2026 varðandi Ásvelli. | | Lagt fram. | | Ákvörðun í máli nr. 31-2026.pdf | | |
|
| 11. 2208505 - Umhverfis- og framkvæmdaráð, tillögur og fyrirspurnir kjörinna fulltrúa | Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Framsóknar:
Nýlega skapaðist umræða á Facebook-síðunni Norðurbærinn minn um leiksvæði við Víðivang 1-5, einkum rólur sem þar eru staðsettar. Leiksvæðið liggur að hluta til inn á lóð Hafnarfjarðarbæjar.
Í ljósi umræðunnar vakna eftirfarandi spurningar:
Voru umrædd leiktæki sett upp á kostnað Hafnarfjarðarbæjar eða íbúa við Víðivang 1?5? Var uppsetning leiktækjanna gerð með eða án samþykkis Hafnarfjarðarbæjar? Eru til gögn í kerfum bæjarins sem varpa ljósi á stöðu þessara leiktækja og hver ber ábyrgð á þeim? Jafnframt kalla þessar aðstæður á víðtækari skoðun:
Eru til heildstæð gögn um almenningssvæði innan bæjarlandsins sem eru á ábyrgð Hafnarfjarðarbæjar? Hver er staða viðhalds á slíkum svæðum? Hefur verið kortlagt hvaða svæði, sérstaklega jaðarsvæði, græn svæði eða opnar lóðir, hafa verið notuð af íbúum, með eða án formlegs leyfis bæjarins? Það er mikilvægt að skýrt sé hver ber ábyrgð þegar búnaður á borð við leiktæki, bekki eða annað er sett upp á svæðum sem tengjast bæjarlandi. Þó að uppsetning slíkra mannvirkja geti verið gerð í góðum hug af hálfu íbúa, getur skapast óvissa um ábyrgð, viðhald og öryggi þegar frá líður, sérstaklega ef ekkert skipulagt eftirlit eða viðhald er fyrir hendi. | | Lagt fram og vísað til sviðsins að taka saman svör við framlagðri fyrirspurn. | | |
|
| 12. 1602126 - Strætó, leiðarkerfi í Hafnarfirði | | Lögð fram tillaga að breytingu á leiðarkerfi Strætó innan Hafnarfjarðar. | | Lagt fram og sviðinu falið að vinna áfram að málinu. | | |
|