Til bakaPrenta
Menningar- og ferðamálanefnd - 468

Haldinn Sólberg,
11.02.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi,
Alexander Árnason aðalmaður,
Sunna Magnúsdóttir fundarritari, Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri.
Fundargerð ritaði: Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2512005 - Menningarstyrkir 2026
Umsóknir um menningarstyrki við fyrri úthlutun 2026 lagðar fram.
Lagt fram.
2. 2512006 - Bæjarlistamaður 2026
Menningar- og ferðamálanefnd hefur óskað eftir tilnefningum að bæjarlistamanni 2026.
Tilnefningar lagðar fram.
3. 2601508 - Kórsjóður Hafnarfjarðar
Bæjarráð hefur staðfest úthlutunar reglur kórsjóðs Hafnarfjarðar. Lagt fram til samþykktar menningar- og ferðamálanefndar.
Verkefnastjóra falið að auglýsa kórsjóð Hafnarfjarðar.
Reglur vegna úthlutunar styrkja úr kórsjóði Hafnarfjarðar_drög_yfirfarið_loka.pdf
4. 2602114 - Lúðrasveit Hafnarfjarðar, samstarfssamningur 2026-2030
Drög að samstarfssamning við Lúðrasveit Hafnarfjarðar til 2030 lagður fram.
Drög samþykkt og lagt til að hitta Lúðrasveitina á næstu dögum.
5. 2601511 - Gallup, þjónusta sveitarfélaga 2025
Niðurstöður Hafnarfjarðarbæjar úr könnun Gallup um þjónustu sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar góðum árangri í menningarmálum og gleðst yfir ánægju bæjarbúa. Hafnarfjörður mælist hæst allra sveitarfélaga í ánægju íbúa með menningu og viðburði í sínum heimabæ.
6. 2602208 - Skautasvellið í Hafnarfirði, tillaga
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram eftirfarandi tilllögu.

Lagt er til að Hafnarfjarðarbær kanni möguleika á því að koma upp varanlegu skautasvelli í bænum. Lagt er til að kannaður verði kostnaður við að koma því upp og mögulega finna því stað í hússnæði í eigu bæjarins.
Skautasvell hefur verið fastur liður í tengslum við Jólaþorpið og notið mikilla vinsælla. Fulltrúi Samfylkingarinnar í menningar- og ferðamálanefnd telur því fulla ástæðu til að kanna möguleikana á uppsetnigu á varanlegu skautasvelli. Með því móti tæki Hafnarfjörður vissa forystu sveitarfélaga utan Reykjavíkur en jaðarsveitarfélög verða að vera á tánum til að tryggja straum ferðamanna til bæjarins. Skautasvell gæti verið einn hluti í því ferli.

Menningar- og ferðamálanefnd vísar málinu til umsagnar hjá íþrótta- og tómstundanefnd sem og umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta